25.apr 2026 13:00 - 15:00

GETA | Elskaðu náungan | Rainy Siagian

Gerðarsafn

Elskaðu náungann er samfélagslegt útsaumsverk eftir Rainy Siagian þar sem þátttakendur koma saman við borð til að sauma og ræða hugmyndina um heimili. Hvað þýðir heimili? hvernig líður fólki þegar það flytur? hvað felur það í sér að yfirgefa heimili og hvernig hægt er að skapa nýtt?

Smiðjan er opin fólki á öllum aldri með ólíka reynslu. Börn skulu vera í fylgd fullorðinna. Gestir geta komið við hvenær sem er á meðan á vinnustofunni stendur.
Tungumál smiðjunnar eru flæmska, íslenska, enska og þýska.

Aðgangur ókeypis og öll eru velkomin!

Samsköpunin hvetur þátttakendur til að opna hugann, einbeita sér við að hlusta á aðra og deila eigin reynslu. Elskaðu náungan verður þannig vettvangur tengsla, þar sem fólk getur hist, spjallað og kynnst „náunga“ sínum í víðustu merkingu orðsins.

Rainy Siagian (f. 1994) er listamaður og rannsakandi, fædd í Indónesíu og uppalin í Belgíu. Verk hennar spretta af djúpum áhuga á fræðilegum, líkamlegum, hugmyndafræðilegum, pólitískum og gagnrýnum víddum rýmis. Hún lítur á rými sem huglæga heild í stöðugri mótun, sem forsendu samfélagslegrar virkni.
Við gerð verka sinna sækir Siagian í aðferðarfræði flökkukenninga sem fjalla oft um það að tilheyra. Listsköpun hennar spannar ýmsa miðla, þar á meðal texta, ljósmyndun, rýmis íhlutanir og mat. Með þessum aðferðum skoðar hún og dregur í efa hvernig við skynjum og tengjumst þeim rýmum sem við búum í.

Hún býr og starfar til skiptis í Brussel og Reykjavík.

Smiðjan er hluti af viðburðaröðinni Together, sem Menningarhús Kópavogs standa fyrir í samstarfi við hjálparsamtökin GETU. Markmið viðburðaraðarinnar er að efla inngildingu og stuðla að þvermenningarlegum skilningi.

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

01
jún
Bókasafn Kópavogs
03
jún
Bókasafn Kópavogs
03
jún
Bókasafn Kópavogs
06
jún
Gerðarsafn
07
jún
Salurinn
10
jún
Bókasafn Kópavogs
10
jún
Bókasafn Kópavogs
17
jún
Bókasafn Kópavogs
23
jún
Menning í Kópavogi

Sjá meira

Gerðarsafn

06
jún
Gerðarsafn

Sjá meira