Velkomin í fjöruga fjölskyldustund þar sem við skoðum lífríki fjörunnar, leitum að kröbbum og kuðungum og fræðumst um þetta áhugaverða búsvæði á mörkum lands og sjávar. Hermann Dreki Guls, líffræðingur ásamt fleirum verður á staðnum til að leiðbeina gestum við lífveruleit og greiningar. Viðburðurinn hentar fjölskyldum með börn á öllum aldri og öðrum forvitnum.
Fjöruferðin verður í Fossvogsfjöru, Kópavogs megin, skammt frá þar sem Fossvogslækur rennur til sjávar milli kl. 12 og 14. Við hvetjum fólk til þess að nýta almenningssamgöngur, til að hjóla eða koma gangandi. Við bendum einnig á að nægt bílastæðapláss er við Menningarhúsin og Molann í aðeins 10 mínútna göngufjarlægt frá fjörunni.
Nákvæm staðsetning: https://maps.app.goo.gl/kHXefT41GGqkHstK8
Endilega hafið meðferðis einhverskonar íláti (ísbox eða fötur) skóflu og forvitnina að vopni. Fyrir fuglaáhuga fólk gæti verið gaman að taka kíki. Til að öll njóti sín sem best er mikilvægt að klæða sig eftir aðstæðum, í góðan skófatnað og vatnsheld föt og jafnvel með þurra sokka í vasanum – líka fullorðin!
Aðgangur er ókeypis | Öll velkomin!
Um fjöruna í Kópavogi og búsvæðavernd:
Fossvogur Kópavogs megin er ekki aðeins vinsælt útivistarsvæði heldur einnig hluti af friðlýstu náttúrusvæði Skerjafjarðar sem nýtur verndar til að varðveita lífríki fjöru og grunnsævis. Þar má finna lækjarós, sjór og leirur, hnullungafjörur og fjörubakka sem mynda lifandi strandvistkerfi sem tekur stöðugum breytingum með sjávarföllum og árstíðum. Innan sveitarfélagsins Kópavogs njóta Kópavogsleirur og ós Fossvogslækjar sérstakrar verndar þar sem fínkornótt leira og þangfjara skapa kjöraðstæður fyrir smádýr sem eru undirstaða fæðu fyrir fjölbreytt fuglalíf allt árið um kring. Markmið friðlýsingarinnar er að vernda afar fjölbreytt lífríki innan höfuðborgarsvæðisins um leið og staðið er vörð um gildi svæðisins til útivistar og fræðslu.










