Einhvers staðar lengst úti á ballarhafi eru tveir sirkuslistamenn að reyna að veiða hugmyndir. Þeir kasta á milli sín fiskileifum, djöggla áhöldum, hvössum augnaráðum, veiðineti og ýmsu fleira og enginn veit hvert förinni er heitið.
Í fjörugu nýsirkussýningunni Shjówmenn kynnumst við tveimur trúðum sem takast á við efnisheim og menningararf sjómennskunnar með sprúðlandi leikgleði sirkuslistanna.
Sýningin hentar áhorfendum á breiðum aldri og notast takmarkað við talað mál.
Shjówmenn – A Circus Performance Inspired by the World of Seafaring
Somewhere far out on the open sea, two circus artists are trying to fish for ideas. They toss fish bones between them, juggle tools, exchange sharp glances, tangle with fishing nets and much more, and no one knows quite where the journey will lead.
In the lively contemporary circus performance Shjówmenn, we meet two clowns who playfully explore the material world and cultural heritage of seafaring through the exuberant inventiveness of circus arts.
The performance is suitable for audiences of all ages and uses very little spoken language.
Krakkahátíðin Kópurinn 2026
Hefur þú heyrt um heimsins mest listelskandi kóp?
Hann býr auðvitað í Kópavogi!
Kópurinn er krakkahátíð þar sem boðið er upp á ókeypis listviðburði og skemmtun fyrir alla fjölskylduna.
Komdu og njóttu þess að hlusta á geggjaða tónlist, horfa á skemmtilegar leik-, dans- og sirkus-sýningar og taktu þátt í smiðjum sem virkja sköpunargáfuna.
Allir viðburðirnir fara fram milli kl. 12 og 16 laugardaginn 9. maí í menningarhúsunum í Kópavogi og aðgangur er ókeypis.
Verið öll hjartanlega velkomin, stór sem smá!














