Lokatónleikar eftir 20 farsæl ár | Töframáttur tónlistar

Tónleikaröðin Töframáttur tónlistar kveður nú með glæsibrag eftir samfellt starf í tvo áratugi.

Við bjóðum ykkur hjartanlega velkomin í Salinn miðvikudaginn 13. maí kl. kl. 13:00 til að fagna þessum merka áfanga.

Upphafsmaður, listrænn stjórnandi og drifraftur Töframáttarins er Gunnar Kvaran, sellóleikari. Í 20 ár hefur verkefnið fært tónlistina til þeirra sem eiga erfitt með að sækja hefðbundna tónleika vegna veikinda, fötlunar, félagslegrar einangrunar eða aldurs.

Verkefnið á sér merka sögu:

Upphaflega beindist tónleikaröðin að fólki með geðfatlanir en með tímanum beindist athyglin víðar og fólk sem átti vegna fötlunar, öldrunar eða félaglegra aðstæðna erfitt með að sækja tónleika.

Tónleikarnir voru lengi haldnir á Kjarvalsstöðum, en eftir heimsfaraldurinn var ákveðið að færa tónlistina beint heim til fólksins — á stofnanir, í kjarna og á heimili.

Ávallt hefur verið lögð áhersla á að skapa á góða, persónulega stemningu á viðburðum.

Töframátturinn hefur einnig heimsótt fangelsin Litla-Hraun og Hólmsheiði og snert við óteljandi hjörtum í gegnum tíðina.

Nú er komið að leiðarlokum og þakkar Töframátturinn fyrir samfylgdina með þessum sérstöku lokatónleikum.

Verkefnið er styrkt af Menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar.

Fram koma:

Hallveig Rúnarsdóttir, sópran
Hallveig er ein ástælasta sópransöngkona landsins. Hún lauk námi frá Guildhall School of Music and Drama í London og hefur margsinnis verið tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna, en þau hlaut hún sem söngkona ársins árin 2013 og 2018.

Hún er þekkt fyrir tæran og fallegan róm og hefur sungið fjölda óperuhlutverka hjá Íslensku óperunni. Hallveig hefur verið sérstaklega virk í að frumflytja nýja íslenska tónlist og leggur mikla áherslu á ljóðasöng.

Hildigunnur Einarsdóttir, mezzósópran
Hildigunnur er mjög virk í íslensku tónlistarlífi, jafnt í kirkjutónlist sem á óperusviðinu. Hún nam í Reykjavík, Berlín og Hollandi og hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin árið 2023 sem söngkona ársins í flokki sígildrar og samtímatónlistar.

Hildigunnur hefur sungið einsöng með Sinfóníuhljómsveit Íslands og komið fram með heimsþekktum listamönnum á borð við Yo-Yo Ma. Hún er einnig öflugur kórstjóri og kennari.

Guðrún Dalía Salómonsdóttir, píanóleikari
Guðrún Dalía er einn fremsti meðleikari landsins, sérstaklega þegar kemur að sönglist. Hún útskrifaðist frá Stuttgart í Þýskalandi og stundaði framhaldsnám í París.

Hún hefur gefið út geisladiska með sönglögum eftir Jórunni Viðar og Karl O. Runólfsson og er þekkt fyrir næman og blæbrigðaríkan leik. Guðrún kemur reglulega fram á tónleikaröðum eins og Tíbrá í Salnum og er lykilmanneskja í flutningi íslenskra tónbókmennta.

Á myndinni: Hildigunnur Einarsdóttir, Hallveig Rúnarsdóttir og Guðrún Dalía Salómonsdóttir
Ljósmyndari: Valgerður Guðrún Halldórsdóttir

Deildu þessari grein

TENGDIR
VIÐBURÐIR

11
maí
Bókasafn Kópavogs
11
maí
16
maí
Bókasafn Kópavogs
12
maí
Bókasafn Kópavogs
13
maí
Bókasafn Kópavogs
13
maí
Salurinn
13
maí
Bókasafn Kópavogs
14
maí
Salurinn
20:00

Improvision

14
maí
17
maí
Salurinn
15
maí
Bókasafn Kópavogs
11:00

Get together

16
maí
06
sep
Gerðarsafn

Sjá meira

NÝJUSTU FRÉTTIR