Af fingrum fram hefur nú sitt 17. starfsár í Salnum í Kópavogi en í þessari sívinsælu spjalltónleikaröð tekur Jón Ólafsson á móti fjölbreyttum hópi listafólks þar sem skemmtileg og einlæg samtöl, sögur úr tónlistarlífnu og lifandi flutningur ráða ríkjum og skapa þannig einstaka og eftirminnilega kvöldstund.
Tónleikaröðin á rætur sínar að að rekja til samnefndra sjónvarpsþátta sem meðal annars hlutu Edduverðlaunin árið 2002. Fyrir 17 árum ákvað gestgjafinn að flytja hugmyndina úr sjónvarpssal og yfir á svið Salarins í Kópavogi við mikinn fögnuð landans sem flykkst hafa á tónleikaröðina allar götur síðan.
Jón Ólafsson er samur við sig þennan tónleikaveturinn og fær áfram til sín fjölbreyttan flokk listafólks í einlægt spjall og góða tóna.
Tryggðu þér miða með forsöluafslætti!
Forsöluverð kr. 7.900 kr
* Almennt verð kr. 9.900 kr

Halli og Gói – 17. september, 2026
Tveir vinsælustu leikarar þjóðarinnar slá í púkk og heimsækja Jón í Salinn!
Á dagskránni verður að finna ódauðleg lög úr leikhúsinum í bland við ólíklegustu tónlist. Enginn yrði hissa þó eitthvað yrði spunnið á staðnum.
Hallgrímur Ólafsson & Guðjón Davíð Karlsson hafa leikið saman í vinsælum leiksýningum eins og Óvitum, Gauragangi og Ormstungu – svo eitthvað sé nefnt. Við þekkjum þá einnig úr sjónvarpsþáttum og bíómyndum og hugsanlega kíkja í heimsókn þeir Magnús M. Magnússon og Kalli Selló.

Una Torfa – 1. október, 2026
Tónlistarkonan vinsæla Una Torfa verður gestur Jóns Ólafssonar í tónleikaröðinni Af fingrum fram í Salnum þann 1. október, 2026!
Fyrir nokkrum árum sló Una rækilega í gegn með frábærum og grípandi popplögum sínum og íslenska þjóðin var meir en til í þessa músík. Það er óhætt að líkja ferlinum hingað til sem sigurför. Hún skrifaði söngleikinn Storm ásamt Unni Ösp Stefánsdóttur auk þess að semja tónlistina fyrir verkið. Auk tónlistar Unu er aldrei að vita nema hægt verði að véla hana í eitthvað fleira skemmtilegt. Hvur veit?

Jón Jónsson – 15. október, 2026
Tónlistarmaðurinn síglaði – og vinsæli Jón Jónsson verður gestur nafna síns Jóns Ólafssonar í tónleikaröðinni Af fingrum fram í Salnum þann 15. október, 2026
Það er óhætt að segja að Jóni Ragnari Jónssyni sé ýmislegt til lista lagt. Í Versló var ekki þverfótað fyrr kappanum sem brilleraði í söngleikjauppfærslum skólans. Hann lék knattspyrnu með gullaldarliði FH í knattspyrnu og varð Íslandsmeistari með liðinu. Hans besta ár var þó auðvitað þegar hann lék sem lánsmaður með Þrótti Reykjavík.
Jón stundaði hagfræðinám í Bandaríkjunum og fór að koma fram með eigið efni sem tryggði honum erlendan plötusamning. Frægðarsól hans hefur engu að síður skinið skærast á Íslandi. Jón lofar fjöri enda ,,Iceguy“!

Jónas Sig – 5. nóvember, 2026
Tónlistarmaðurinn og „Sólstrandagæinn“ Jónas Sig verður gestur Jóns Ólafssonar í tónleikaröðinni Af fingrum fram í Salnum 5. nóvember, 2026.
Þorlákshafnar Jónas sló í gegn með Sólstrandargæjunum og þjóðin söng með af lífi og sál. Í kjölfarið fór hann til Danmerkur að vinna fyrir Microsoft og beið hans björt framtíð við tölvuforritun.
Tónlistin togaði þó í hann og flutti hann aftur til Íslands og lét skeika að sköpuðu undir eigin nafni ásamt Ritvélum framtíðarinnar. Íslendingar voru meir en tilbúnir að taka Sólstrandagæjann aftur upp á arma sína og Jónas hefur vart litið um öxl síðan!

Ragga Gísla – 26. nóvember, 2026
Tónlistarkonan og lifandi goðsögnin Ragga Gísla verður gestur Jóns Ólafssonar í tónleikaröðinni Af fingrum fram í Salnum þann 26. nóvember, 2026
Tónmenntakennarinn í Melaskóla sló fyrst í gegn með Lummunum og Brimkló áður en hún stofnaði hinar goðsagnakenndu Grýlur – kvennasveitina fornfrægu sem söng um Sísí og Gullúrið. Eftir þátttöku í kvikmyndinni Með allt á hreinu gekk hún til liðs við Stuðmenn og söng þar ódauðleg lög eins og Betri tíð o.fl.
Auk þess hefur Ragga gert sólóplötur og tekið þátt í alls kyns verkefnum auk þess að leika á sviði og í bíó. Þetta verður rooooooosalegt kvöld!

Mugison – 21. janúar, 2027
Vestfirðingurinn og tónlistarmaðurinn góðkunni Mugison verður gestur Jóns Ólafssonar í tónleikaröðinni Af fingrum fram í Salnum 27. janúar, 2027.
Örn Elías Guðmundsson er ákaflega ástsæll á meðal Íslendinga enda fáir verið duglegri að heimsækja landsbyggðina. Hann kallar sig Mugison og er alveg sér á parti á íslenskri tónlistarsenu. Hljómplatan Haglél tryggði honum heiðurssæti og lög eins og Stingum af eru orðin hluti af íslenskri þjóðarsál. Það er óhætt að segja að hér verði um að ræða ansi gott kvöld!

Bríet – 11. febrúar, 2027
Tónlistarkonan vinsæla Bríet verður gestur Jóns Ólafssonar í tónleikaröðinni Af fingrum fram í Salnum þann 11. febrúar, 2027.
Bríet Ísis Elfar var 19 ára gömul þegar hennar fyrsta lag kom út árið 2018. Tveimur árum síðar sló hún svo rækilega í gegn með hljómplötunni Kveðja sem kom út árið 2020 en öll lög plötunnar náðu inn á topp 10 lista Spotify tónlistarveitunnar á Íslandi. Hljómplatan var valin plata ársins á Íslensku tónlistarverðlaununum. Síðan þá hefur Bríet haldið stalli sem ein vinsælasta tónlistarkona landsins. Hún hefur komið víða við og m.a. sungið lög með Bubba Morthens, GDRN, KK, Ásgeiri Trausta, Aroni Can og Friðriki Dór svo dæmi séu nefnd.

Daníel Ágúst – 11. mars, 2027
Tónlistarmaðurinn fjölhæfi Daníel Ágúst verður gestur samstarfsfélaga síns til margra ára, Jóns Ólafssonar í tónleikaröðinni Af fingrum fram í Salnum þann 11. mars, 2027.
Daníel Ágúst sló fyrst í gegn með hljómsveitinni Nýdönsk þegar lagið Hólmfríður Júlíusdóttir kom út. Hljómsveitin starfar enn og þeir eru ófáir smellirnir sem Daníel hefur samið og/eða sungið í þeim félagsskap. Má þar nefna lög eins og Horfðu til himins og Fullkomið farartæki. Hann er einnig meðlimur í Gus Gus sem er ekki síður vinsæl og á einnig góðu fylgi að fagna á erlendri grundu. Daníel hefur einnig sent frá sér sólóplötur auk þess að leika á sviði og í bíómyndum.
Það er von á góðu þegar söngvari Gus Gus og Nýdönsk heilsar upp á Jón sinn í Salnum!

Ólöf Arnalds – 8. apríl, 2027
Hin magnaða tónlistarkona Ólöf Arnalds verður gestur Jóns Ólafssonar í tónleikaröðinni Af fingrum fram í Salnum þann 8. apríl, 2027.
Ólöf er einstök tónlistarkona sem gagnrýnendur hafa hlaðið lofi, bæði á Íslandi og í útlöndum. Hún hefur verið í samstarfi við listamenn eins og Björk, Stórsveit Nix Noltes, Slowblow og Skúla Sverrisson svo dæmi séu nefnd en það eru sólóplötur hennar sem eru kannski hæst skrifaðar hjá aðdáendum. Sú fyrsta kom út árið 2007 og á síðasta ári kom hennar fimmta breiðskífa út.
Það verður notaleg kvöldstund þegar Ólöf heimsækir Jón í Salinn!

Sóli Hólm – 6. maí, 2027
Skemmtikrafturinn vinsæli Sóli Hólm verður gestur Jóns Ólafssonar í tónleikaröðinni Af fingrum fram í Salnum þann 6. maí, 2027.
Sólmundur var mikið félagsmálatröll í MS og lék þar og söng öllum stundum. Snemma urðu listamennirnir Pálmi Gunnarsson og Shaggy þess heiðurs aðnjótandi að hann fór að herma eftir þeim.
Í dag er Sóli Hólm einn vinsælasti skemmtikraftur landsins auk þess sem hann hefur skrifað gamanefni fyrir sjónvarp. Eftirhermur hans eru engum líkar – nema fyrirmyndunum og kappinn er hörku söngvari í ofanálag. Gestir mega eiga von á góðu.









