07.okt 2026 17:00 - 19:00

Félagslegir töfrar | Vika einmanaleikans

Bókasafn Kópavogs

Aðalsafn | 2. hæð

Yfirskrift viðburðarins þann 7. október er Félagslegir töfrar og hefst kl. 17:00 með kynningu frá Félagi kvenna í Kópavogi.
Viðar Halldórsson prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands mun koma til okkar með fyrirlesturinn Félagslegir töfrar.
Í kjölfarið á Viðari fer Eyrún Ósk Jónsdóttir verkefnastjóri á Bókasafni Kópavogs stuttlega yfir samfélagið á bókasafninu, viðburði og þjónustu og í lokin verður boðið upp á fallegt tónlistaratriði með Andrés Ramón tónlistarmanni.
Andrés Ramón lauk meistaranámi í tónsmíðum með áherslu á tónlistarmannfræði frá Listaháskóla Íslands, þar sem hann kennir nú. 

Frítt inn og öll velkomin.

Félag kvenna í Kópavogi og Bókasafn Kópavogs taka höndum saman í viku einmanaleikans og bjóða upp á fræðslu, skemmtun og spjall þann 7. október kl. 17.

Vika einmanaleikans er vitundarvakning Kvenfélagasambands Íslands gegn einsemd og einmanaleika og er verkefninu ætlað að opna á umræðu um einmanaleika í samfélaginu, upplýsa almenning um orsakir og afleiðingar, hvetja til aðgerða og efla samtakamátt í þjóðfélaginu gegn einmanaleika.

„Bókasafn Kópavogs gerir margt til að sporna við einmanaleika og er margt í boði hjá okkur fyrir öll. M.a. erum við með þrjá hannyrðaklúbba, þrjá bókmennta- og lesklúbba, Sögufélag Kópavogs stendur reglulega fyrir ýmsum viðburðum, rithöfundar koma til okkar á ýmsar uppákomur, Jane Austen klúbburinn er með aðsetur hjá okkur og tónleikar, ýmis fræðsla og uppákomur eru nánast daglega hjá okkur,“ segir Lísa Z. Valdimarsdóttir forstöðumaður Bókasafns Kópavogs.

Við hvetjum öll til að kíkja við og sækja sér fræðslu og skemmtun í notalegu andrúmslofti.

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

06
jún
Gerðarsafn
06
jún
22
ágú
Gerðarsafn
07
jún
Salurinn
09
jún
Bókasafn Kópavogs
10
jún
Bókasafn Kópavogs
10
jún
Bókasafn Kópavogs
10
jún
Bókasafn Kópavogs
11
jún
Salurinn
12
jún
Bókasafn Kópavogs
11:00

Get together

Sjá meira

Bókasafn Kópavogs

09
jún
Bókasafn Kópavogs
10
jún
Bókasafn Kópavogs
10
jún
Bókasafn Kópavogs
10
jún
Bókasafn Kópavogs
12
jún
Bókasafn Kópavogs
11:00

Get together

16
jún
Bókasafn Kópavogs
17
jún
Bókasafn Kópavogs
19
jún
Bókasafn Kópavogs
11:00

Get together

23
jún
Bókasafn Kópavogs

Sjá meira