15.sep 2026 14:00 - 15:30

Barnarímnatónleikar

Salurinn

Salurinn

Barnarímnatónleikar í Salnum á Degi rímnalagsins

Dagur rímnalagsins er haldinn þann 15. september ár hvert og skapast hefur sú hefð að fá á svið VÖKU unga flytjendur sem hafa tileinkað sér eina elstu sönghefð landsins undir leiðsögn reyndra kvæðamanna.

Skólakór Kársness sem í ár fagnar 50 ára starfsafmæli, flytur þjóðlög og rímnalög í fallegum útsetningum, þ.á.m. Þýtur í stráum sem Sigurður Rúnar Jónsson útsetti fyrir kórinn árið 2000. Kórinn hefur haldið marga tónleika innanlands sem utan og gefið út nokkrar plötur. Stjórnandi kórsins er Álfheiður Björgvinsdóttir.

Sönghópur úr Barnaskóla Hjallastefnunnar í Reykjavík kveður fjölbreytt rímnalög við vísur sem þau hafa unnið með í skólastarfinu.  Kennari og stjórnandi þeirra er Kolbrún Hulda Tryggvadóttir.

Kvæðabarnafjelag Laufásborgar var stofnað árið 2023 og hefur frá upphafi lagt áherslu á að kynna börn fyrir íslenskum kveðskap og rímnasöng. Kvæðamaðurinn Steindór Andersen var einn helsti lærifaðir barnanna í kveðskapnum, auk þess sem fleiri kvæðamenn og konur hafa komið að kennslu og leiðsögn, þar á meðal Bára Grímsdóttir. Kvæðabarnajelaginu stýrir Ari Hálfdán Aðalgeirsson. 

Tónleikarnir gefa áheyrendum kost á að kynnast rímnasöngnum í flutningi barna og ungmenna og sýna hvernig þessi forna sönghefð berst áfram í gegnum raddir nýrra kynslóða. 

Tónleikarnir hefjast kl. 14 og er aðgangur ókeypis.

//

VAKA þjóðlistahátíð fer fram dagana 13.– 19. september 2026 í Kópavogi. Á hátíðinni mætast tónlist, dans, handverk, sagnalist og kveðskapur í fjölbreyttri dagskrá fyrir forvitna gesti á öllum aldri. VAKA leggur áherslu á að gera sem flestum kleift að sækja viðburði hátíðarinnar. Því eru í boði þrír mismunandi verðflokkar á flesta viðburði og velur hver gestur það verð sem hentar best. Tryggið ykkur hátíðarpassa sem veitir ykkur aðgang að öllum viðburðum hátíðarinnar.

Allar upplýsingar um hátíðina má finna á www.vakareykjavik.is og á samfélagsmiðlum Vökufélagsins.

Deildu þessum viðburði

13
sep
19
sep
Salurinn
13
sep
Salurinn
20:00

GÁRUR

14
sep
Salurinn
17:00

ÞRÆÐIR

15
sep
Salurinn
15
sep
Salurinn
16
sep
Salurinn
17:00

RÆMUR

18
sep
Salurinn
19
sep
Salurinn
19:00

VÖKUPARTÍ

19
sep
Salurinn
14:00

KRAKKAVAKA

Sjá meira

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

18
jún
Salurinn
19
jún
Bókasafn Kópavogs
11:00

Get together

23
jún
Menning í Kópavogi
23
jún
Bókasafn Kópavogs
24
jún
Bókasafn Kópavogs
24
jún
Bókasafn Kópavogs
24
jún
Bókasafn Kópavogs
25
jún
Salurinn
10
ágú
16
ágú
Salurinn

Sjá meira

Salurinn

18
jún
Salurinn
25
jún
Salurinn
10
ágú
16
ágú
Salurinn
23
ágú
Salurinn
09
sep
Salurinn
20:00

Fall

13
sep
19
sep
Salurinn
13
sep
Salurinn
20:00

GÁRUR

14
sep
Salurinn
17:00

ÞRÆÐIR

15
sep
Salurinn

Sjá meira