Styrmir Örn Guðmundsson flytur vel valin lög á stálpönnu sem er hljóðfæri sem varð til á Trinidad og Tobago í byrjun 20. aldar. Pannan er handsmíðuð úr olíutunnu og er ásláttarhljóðfæri með handbarið nótnaborð úr krómuðu stáli í skipulagi fimmundarhringsins.







