19.nóv 2026 20:00 - 22:00

Jólabókaspjall

Bókasafn Kópavogs

Aðalsafn | 2. hæð

Auður Ava Ólafsdóttir, Einar Lövdahl og Jón Kalman Stefánsson verða gestir Guðrúnar Sóleyjar Gestsdóttur í árlegu jólabókaspjalli Bókasafns Kópavogs.

Húsið opnar kl. 19:30, gengið inn á 2. hæð.

Þau lesa úr glænýjum skáldsögum sínum og taka þátt í líflegum samræðum um skáldverk sín sem eru: Tengdasonur Íslands eftir Auði Övu, Aðskotahlutir eftir Einar Lövdahl og Vakir þú? eftir Jón Kalman.

Boðið verður upp á laufléttar veitingar og notalega stemningu. Aðgangur ókeypis og öll hjartanlega velkomin á meðan húsrúm leyfir.

Jólabókaspjallið er orðið ómissandi liður í aðventunni og við hlökkum til að sjá ykkur.

Tengdasonur Íslands eftir Auði Övu Ólafsdóttur
Í miðri heimsstyrjöldinni skolar á land vísindamanni sem hefur áhuga á náttúru og talar mörg tungumál. Zakarías er blóðafi Valgerðar, sem býr með 103 ára ömmu sinni, Valgerði eldri, en þær deila missi. Nöfnurnar horfa til fortíðar og rekja sögu sem fjallar um hver við erum, hvaðan við komum og um tímann, sem rennur aftur á bak að upptökum sínum.

Aðskotahlutir eftir Einar Lövdahl
Svefnvana móðir í Svíþjóð fær nístandi óþægindi úr fortíðinni á heilann. Ungur eldhugi dragnast með íslenska slaufun og stóra drauma í nýju landi. Eiga þau afturkvæmt til Íslands? Heillandi samtímasaga um tengsl, meðalmennsku og frama, samskipti í hjónabandi og eðli vináttu, eilífan flótta undan sársauka og eftirsjá eftir því sem aldrei varð.

Vakir þú? eftir Jón Kalman Stefánsson
Skelfileg tíðindi reka elskendur af stað í eitt afdrifaríkasta ferðalag veraldarsögunnar. Öldum síðar bíður maður í Vesturbænum eftir pípara. Hann er ásóttur af hugsunum og finnur að eitthvað er í vændum. Samtímaverk byggt á ævi frægustu persónu sögunnar, uppgjör við guð, menn og það fegursta og versta í okkur sjálfum.

Deildu þessum viðburði

12
nóv
23
nóv
Bókasafn Kópavogs
19
nóv
Bókasafn Kópavogs
26
nóv
Bókasafn Kópavogs
28
nóv
Salurinn
30
nóv
Bókasafn Kópavogs
01
des
19
des
Bókasafn Kópavogs
02
des
Bókasafn Kópavogs
03
des
Salurinn

Sjá meira

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

20
okt
Bókasafn Kópavogs
21
okt
Bókasafn Kópavogs
21
okt
Bókasafn Kópavogs
21
okt
Gerðarsafn
22
okt
23
okt
Bókasafn Kópavogs
11:00

Krakkabíó

22
okt
Bókasafn Kópavogs
22
okt
Gerðarsafn
22
okt
23
okt
Bókasafn Kópavogs
22
okt
23
okt
Bókasafn Kópavogs
25
okt
Salurinn
17:00

Dolly Parton

Sjá meira

Bókasafn Kópavogs

20
okt
Bókasafn Kópavogs
21
okt
Bókasafn Kópavogs
21
okt
Bókasafn Kópavogs
22
okt
23
okt
Bókasafn Kópavogs
11:00

Krakkabíó

22
okt
Bókasafn Kópavogs
22
okt
23
okt
Bókasafn Kópavogs
22
okt
23
okt
Bókasafn Kópavogs
22
okt
Bókasafn Kópavogs
12
nóv
23
nóv
Bókasafn Kópavogs
01
des
19
des
Bókasafn Kópavogs

Sjá meira