Í þessari fjölskyldustund geta gestir og gangandi komið við í Náttúrusafninu, barið lifandi maura augum og fræðst um þá um leið.
Maurar eru mögnuð dýr! Daglegt líf maurs er annasamt og hver og einn maur hefur mikilvægu hlutverki að gegna í þágu samfélagsins. Líffræðingurinn Marco Marcini hefur útbúið maurabú þar sem hægt er að fylgjast með þeim að störfum.
Þetta er kjörið tækifæri fyrir forvitin til að fræðast um þessar mögnuðu lífverur og félagshegðun þeirra.
Aðgangur er ókeypis og öll hjartanlega velkomin!
Viðburðurinn er liður í Fjölskyldustundum á laugardögum og er styrktur af menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar.
//
Many Icelanders consider Iceland an ant free country. Jet some species have established themselves in parts of Iceland. This event uses ants as a model to spark curiosity, showcasing their fascinating characteristics and encouraging conversations about social insects. Kids and families can view live ants in artificial nests and discover more about these remarkable creatures.
Children and families of all age are welcome!
Free entry.

























