Verið hjartanlega velkomin í Jólalundinn í Guðmundarlundi þar sem fram fer dásamleg fjölskyldudagskrá. Ekki missa af jólaballinu hennar Rófu, spurningakeppni Hurðaskellis, sveimandi ævintýraverum, blaðskellandi jólasveinum, rjúkandi heitu kakói, splunkunýjum ratleikjum og jólaföndri í dásamlegri náttúru.
Dagskráin er endurtekin yfir daginn svo að allir ættu að komast að, hitta ævintýraverur og jólasveina. Ratleikur og föndur verður í boði á meðan opnun stendur og hægt verður að kaupa heitt kakó.
Jólaball Rófu
13:10 – 13:40 – 14:10 – 14:35
Við hlökkum til þess að sjá ykkur og njóta fjölskyldauvænnar samveru í fallegu náttúrunni okkar hér í Kópavogi.























