30.jún 2020 ~ 07.ágú 2020

Sumarspírur Menningarhúsanna í Kópavogi

Gerðarsafn

Fjölbreyttar smiðjur þriðjudaga til fimmtudaga kl. 13-15

Menningarhúsin í Kópavogi hafa fengið til liðs við sig öfluga sumarstarfsmenn sem munu standa fyrir skapandi og fræðandi smiðjum kl. 13-15 alla þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga í sumar, fram til 7. ágúst.
Þær Guðný Sara Birgisdóttir myndlistarkona og meistaranemi í hönnun við Listaháskólann, Ýr Jóhannsdóttir textíllistakona og nemi í listkennsludeild Listaháskólans, Jóhanna Malen Skúladóttir jarðvísindanemi í HÍ og teiknari og Þórhildur Magnúsdóttir víólunemi í Tónlistarháskólanum í Kaupmannahöfn eru sumarstarfsmenn menningarhúsanna í Kópavogi í sumar.
Þær munu sjá um skipulag skemmtilegra smiðja yfir sumartímann fyrir unga sem aldna þvert á Menningarhúsin í Kópavogi með sjálfbærni og endurvinnslu að leiðarljósi. Leikið verður með einkenni allra húsa; bókmenntir, náttúru, sögu, tónlist og myndlist, svo allir ættu að finna sér eitthvað við hæfi. Smiðjurnar hefjast þann 30. júní, eru ókeypis og verða alla þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga eftir hádegi, með fyrirvara um breytingar.

Nánari upplýsingar verða birtar vikulega á heimasíðu Menningarhúsanna og á Facebook síðunni Sumarpírur í Kópavogi.

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

25
okt
Salurinn
17:00

Dolly Parton

26
okt
Bókasafn Kópavogs
26
okt
Bókasafn Kópavogs
27
okt
Bókasafn Kópavogs
28
okt
Bókasafn Kópavogs
28
okt
Bókasafn Kópavogs
16:30

Myndaspjall

28
okt
Bókasafn Kópavogs
28
okt
Bókasafn Kópavogs
28
okt
Bókasafn Kópavogs
31
okt
03
nóv
Salurinn
19:30

Sweeney Todd

12
nóv
23
nóv
Bókasafn Kópavogs
01
des
19
des
Bókasafn Kópavogs

Sjá meira

Gerðarsafn

11
nóv
Gerðarsafn

Sjá meira