15.okt 13:00

Gerðarsafn

Skúlptúrgerð í anda Gerðar Helgadóttur.

Verið velkomin í fjölskyldustund kl. 13-15 í Gerðarsafni. Brynhildur Kristinsdóttir, myndlistarmaður leiðir smiðju þar sem unnin verða þrívíð verk undir áhrifum frá Gerði Helgadóttur.


Í smiðjunni gefst fjölskyldum tækifæri til að búa til litla skúlptúra úr við, vír, garni, trépinnum og pappír. Unnið verður út frá þrívíðum verkum Gerðar og leikið með form, línur og fleti. Ímyndunaraflinu verður gefinn laus taumur þannig að „allt og hvaðeina“ geti gerst, hver veit nema fletir og form breytist í tungl, plánetur eða sólir*.

Smiðjan er opin öllum og er þátttaka gestum að kostnaðarlausu.

Brynhildur Kristinsdóttir er myndlistarmaður og kennari. Auk þess að starfa við eigin myndsköpun hefur Brynhildur kennt myndlist og smíðar og átt í samstarfi við ýmsa listamenn, gert leikmyndir og búninga fyrir gjörninga og dans. Brynhildur hefur haldið einkasýningar og tekið þátt í fjölmörgum samsýningum.

*„Allt og hvaðeina“ er titill á þríleik eftir dulspekinginn Gurdjieff, en Gerður iðkaði hugrækt eftir forskrift Gurdjieffs og hafði það mikil áhrif á listsköpun hennar.

Deildu þessum viðburði

08
nóv
Bókasafn Kópavogs
08
nóv
Náttúrufræðistofa Kópavogs
15
nóv
Bókasafn Kópavogs
13:00

Luktasmiðja

Sjá meira

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

23
okt
31
okt
Bókasafn Kópavogs
23
okt
01
nóv
Bókasafn Kópavogs
31
okt
Bókasafn Kópavogs
11:00

Get together

01
nóv
Bókasafn Kópavogs
01
nóv
Bókasafn Kópavogs
02
nóv
Salurinn
02
nóv
Salurinn
02
nóv
25
apr
Salurinn
03
nóv
Bókasafn Kópavogs

Sjá meira

Gerðarsafn

09
nóv
Gerðarsafn
12
nóv
25
jan
Gerðarsafn
20
nóv
Gerðarsafn
20
nóv
Gerðarsafn
29
nóv
Bókasafn Kópavogs
18
des
Gerðarsafn

Sjá meira