Kópavogskirkja fagnar 60 ára afmæli. Frú Agnes M. Sigurðarsdóttir, biskup, vísiterar söfnuðinn og prédikar. Lenka Mátéóva, tónlistarstjóri kirkjunnar, leiðir sannkallaða tónlistarveislu. Prestar og djákni safnaðarins þjóna við athöfnina ásamt fjölda fólks úr sögu safnaðarins.
Að lokinni guðsþjónustu verður afmælismóttaka í Borgum, safnaðarheimili kl. 12.15
Á þessari aðventu verður meira en eingöngu hefðbundin aðventudagskrá í Kópavogskirkju en kirkjan á 60 ára vígsluafmæli í desember. Þessi einkenniskirkja Kópavogs hefur mætt fólki í gleði og sorg í 60 ár og nú fögnum við afmæli hennar.