06.jan 15:00

Allir velkomnir

Gerðarsafn

Samtal um málefni sýningarinnar „Einungis allir“ fara fram í Gerðarsafni á síðasta sýningardegi, þann 6. janúar 2019, kl. 15. Meðal þátttakenda eru myndlistarmennirnir Libia Castro & Ólafur Ólafsson og Melanie Ubaldo, Snæbjörn Brynjarsson, rithöfundur og blaðamaður og Kristín Dagmar Jóhannesdóttir, safnstjóri Gerðarsafns. Sara S. Öldudóttir, sýningarstjóri og rannsakandi Cycle-listahátíðar, leiðir umræðurnar. 

Sýningin Einungis allir opnar fyrir umræðu um það hverjir fá að „tilheyra“ í vestrænu samfélagi. Listamenn velta fyrir sér sjálfsmyndum þjóða, tungumáli, fólksflutningum, frelsi og uppflosnun í nútíma og fortíð. Sýningin þenur jafnframt út hefðbundin landamæri milli nútímalistar, tónlistar, popplistar og ljóðlistar með því að stilla samstundis fram verkum myndlistarmanna, hönnuða, tónlistarmanna og ljóðskálda. Afraksturinn er fjölradda sýning mismunandi hrynjandi og tungumála sem teygir sig út fyrir veggi stofnunarinnar, tíma og rými. Á hátíðinni á síðasta ári, auk millikafla hennar í Berlín fyrr á þessu ári, hafa þegar komið fram áhrifamiklar hugvekjur um umburðarlyndi meðal þjóða. Áhrif fyrri viðburða bergmála innra með okkur og sýningin í Gerðarsafni dregur form sitt af endurómi þeirra skyntengsla, tilfinninga og nándar. 

Sýningin opnaði í tenglsum við Cycle-listahátíð 2018. Þema hátíðarinnar, Þjóð meðal þjóða, beinir sjónum að áleitnum spurningum sem varða frelsisbaráttu og þjóðernishugmyndir í samhengi við 100 ára fullveldisafmæli Íslands. Hver er staða Íslands í samhengi við nýlendusögu heimsins? Er til ættjarðarást án mikilmennsku? Getum við náð jafnvægi milli umburðarlyndis og valds, eða verðum við alltaf að útiloka aðra til að standa vörð um eigin hóp? Hvað merkir hugtakið þjóð ef enginn er útilokaður? Þjóð meðal þjóða? Þjóðahaf?

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

20
feb
17
apr
Gerðarsafn
24
feb
Bókasafn Kópavogs
slökunarjóga
12:00

Stólajóga

24
feb
Bókasafn Kópavogs
24
feb
Bókasafn Kópavogs
24
feb
Náttúrufræðistofa Kópavogs
25
feb
Bókasafn Kópavogs
25
feb
Bókasafn Kópavogs
25
feb
Bókasafn Kópavogs
14:00

Spilastuð

26
feb
Bókasafn Kópavogs

Sjá meira

Gerðarsafn

20
feb
17
apr
Gerðarsafn
26
feb
Gerðarsafn
09
mar
09
feb
Gerðarsafn
19
mar
Náttúrufræðistofa Kópavogs
23
mar
23
feb
Gerðarsafn
14:00

Leiðsögn

Sjá meira