Bacterial Girls halda smiðju þar sem hægt verður að koma með eigin bol og veita honum nýtt líf. Þær nota sólarprent aðferð með myndum af bakteríusýnum frá kennileitum í Kópavogi og prenta þær á boli. Þær hvetja ykkur til að koma með eigin bol en það er einnig hægt að að kaupa hvítann bómullarbol á kostnaðarverði á staðnum. Það er frítt á smiðjuna ef þú kemur með þinn eiginn bol.
Smiðjan tekur um klukkutíma, fríttt inn og öll velkomin.