Birgitta Elín Hassell og Marta Hlín Magnadóttir, eigendur bókaútgáfunnar Bókabeitunnar, spjalla um hið frábæra bókmenntaform skvísubækur. Marta og Birgitta hafa sjálfar þýtt fjölda bóka sem falla undir þann flokk og gefið út undir merkjum Bjartar bókaútgáfu. Óhætt er að kasta fram að þessi flokkur bóka er einn sá vinsælasti á bókasöfnum landsins og veitir glæpasögum verðskuldaða samkeppni.
Velkomin á langan fimmtudag.
Léttar skvísulegar veitingar og bleik stemning.
Aðgangur ókeypis og öll velkomin á meðan húsrúm leyfir.