07.feb 2025 18:00 - 21:00

DJ Ívar Pétur á Krónikunni á Safnanótt

Gerðarsafn

Það verður opið á Krónikunni í Gerðarsafni á Safnanótt fram eftir kvöldi þar sem hægt verður að fá sér ljúffengar veitingar og drykki. Frá 18:00 til 21:00 mun DJ Ívar Pétur úr FM Belfast spila lög frá flestum heimshornum í huggulegri og létt-dillandi stemmningu.

Fjölbreytt dagskrá verður í boði á Safnanótt í Gerðarsafni.

Klukkan 19 bjóða Dýrfinna Benita og Sadie upp á listamannaleiðsögn um verk sín á sýningunni Stara.

Klukkan 21 hefst opnunarkvöld gjörningafestivals Gerðarsafns og Hamraborg Festivals. Viðburðurinn er sá fyrsti í gjörningafestivali sem teygir sig yfir allt árið 2025. Þau sem koma fram á þessu fyrsta kvöldi eru Ásdís Sif Gunnarsdóttir, Curro Rodriguez, Hrefna Lind Lárusdóttir og Tara & Silla.

Ókeypis er á sýningar í Gerðarsafni á Safnanótt, föstudaginn 7. febrúar á milli 18 og 23. Sýningin Stara stendur nú yfir á efri hæð safnsins en þar sýna Adele Hyry, Dýrfinna Benita Basalan, Jenny Rova, JH Engström, Jói Kjartans, Kristinn G. Harðarson, Michael Richardt og Sadie Cook. Á neðri hæð stendur yfir grunnsýning á verkum Gerðar Helgadóttur.

Sjáumst á Safnanótt.

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

05
nóv
Salurinn
20:30

Jónas Sig

05
nóv
Bókasafn Kópavogs
05
nóv
Bókasafn Kópavogs
05
nóv
Bókasafn Kópavogs
06
nóv
Gerðarsafn
07
nóv
Náttúrusafn Kópavogs
07
nóv
Bókasafn Kópavogs
07
nóv
Salurinn
07
nóv
Bókasafn Kópavogs
12
nóv
23
nóv
Bókasafn Kópavogs
01
des
19
des
Bókasafn Kópavogs
05
des
23
des
Salurinn

Sjá meira

Gerðarsafn

06
nóv
Gerðarsafn
11
nóv
Gerðarsafn
06
des
Gerðarsafn

Sjá meira