Verið velkomin á langan fimmtudag í Gerðarsafni.
Á fimmtudaginn verður safnið opið til 21.
Listsmiðja fyrir alla fjölskylduna í sýningunni Sjórinn er fullur af góðum verum. Sjórinn er fullur af rusli! í Gerðarsafni. Umsjón hafa Sumarspírur Menningarhúsanna, þau Anja Ísabella Lövenholdt, Ásthildur Ákadóttir, Bjartur Örn Bachmann og Hlökk Þrastardóttir.
https://www.facebook.com/groups/551255628902447
Jónsmessunni er fagnað með pompi og pragt í Bókasafni Kópavogs, Gerðarsafni og Náttúrufræðistofu. Opið verður til klukkan 21 í öllum húsum og boðið verður upp á fjölbreytta viðburði; Plöntuskiptimarkaður í Bókasafni Kópavogs, Dagrún Aðalsteinsdóttir með leiðsögn um sýninguna Hlutbundin þrá kl. 17 í Gerðarsafni, Skapandi sumarstörf verða með gjörning kl. 18:00 í Gerðarsafni og tónleikar með Pétri Erni úr Buffinu kl. 20:00 á Bókasafni Kópavogs.
Reykjavik Roasters verða með opið til 21 og hægt að fá sér léttvín og léttan bita.
Allir velkomnir!