20.maí 2021 ~ 30.maí 2021

Fylgið okkur | HönnunarMars

Gerðarsafn

20.05.2021 – 30.05.2021

Sýningin Fylgið okkur teflir fram völdum verkum frá nýjum og upprennandi íslenskum hönnuðum sem eru nýsprottnir fram á sjónarsviðið. Hönnuðirnir eiga það sammerkt að hafa með sínum fyrstu verkum vakið athygli og eftirvæntingu, hver á sínu sviði.

Samruni og samvinna þvert á greinar er einkennandi en hönnuðirnir líta inn á við, út á við og fram á við í leit að nýjum leiðum til að takast á við viðfangsefni nútíðar og framtíðar: Sjálfbærni og fléttu samfélags við manngerð vistkerfi; vistvæna gjörnýtingu dýraafurða annars vegar og staðgengla þeirra í fæðuhringnum hins vegar; frammistöðukvíða og innblástursleysi á móti óhindruðum leik- og sköpunarkrafti; framtíð tískunnar og marglaga sjálfsmynd okkar í sýndar- og raunveruleika.

Sýnendur eru: Anna Diljá Sigurðardóttir upplýsingahönnuður, Arnar Grétarsson arkitektúrnemi, Arnar Már Jónsson fatahönnuður, Búi Bjarmar Aðalsteinsson vöruhönnuður, Sigríður Birna Matthíasdóttir hönnuður, Sólveig Hansdóttir fatahönnuður, Steinarr Ingólfsson grafískur hönnuður og Valdís Steinarsdóttir vöruhönnuður.
Anna Diljá Sigurðardóttir upplýsingahönnuður, Arnar Grétarsson arkitektúrnemi, Arnar Már Jónsson fatahönnuður, Búi Bjarmar Aðalsteinsson vöruhönnuður, Sigríður Birna Matthíasdóttir hönnuður, Sólveig Hansdóttir fatahönnuður, Steinarr Ingólfsson grafískur hönnuður og Valdís Steinarsdóttir vöruhönnuður.
Valdís Steinarsdóttir vöruhönnuður.
Sýningarstjóri er Sara Jónsdóttir, fyrrum stjórnandi HönnunarMars.

Hittið hönnuði á Fylgið okkur!
Helgina 22.-23. maí verða hönnuðurnir í safninu og svara spurningum gesta.
maí – Laugardagur
maí – Laugardagur
Kl. 13-15: Anna Diljá, Arnar Grétarsson
Kl. 15-17: Sigríður Birna, Sól Hansdóttir

maí – Sunnudagur
maí – Sunnudagur
Kl. 13-15: Arnar Már, Búi Bjarmar, Sigríður Birna
Kl. 15-17: Anna Diljá, Valdís Steinarsdóttir

LISTAFÓLK

Anna Diljá Sigurðardóttir upplýsingahönnuður, Arnar Grétarsson arkitektúrnemi, Arnar Már Jónsson fatahönnuður, Búi Bjarmar Aðalsteinsson vöruhönnuður, Sigríður Birna Matthíasdóttir hönnuður, Sólveig Hansdóttir fatahönnuður, Steinarr Ingólfsson grafískur hönnuður og Valdís Steinarsdóttir vöruhönnuður.

SÝNINGARSTJÓRN

Sara Jónsdóttir

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

06
mar
Bókasafn Kópavogs
11:00

Get together

06
mar
Gerðarsafn
07
mar
Bókasafn Kópavogs
07
mar
Bókasafn Kópavogs
07
mar
Náttúrusafn Kópavogs
08
mar
Salurinn
09
mar
Bókasafn Kópavogs

Sjá meira

Gerðarsafn

06
mar
Gerðarsafn
11
mar
Gerðarsafn
16
maí
06
sep
Gerðarsafn

Sjá meira