23.sep 2026 18:00 - 19:00

Innsýn inn í hugarheim Valgerðar Briem með Cecilie Gaihede

Gerðarsafn

Gerðarsafn

Skyggnumst inn í magnaðan hugarheim Valgerðar Briem með Cecilie C. Ragnheiðardóttur Gaihede, sýningarstjóra sýningarinnar. Leiðsögnin fer fram miðvikudaginn 23. september kl. 18:00 í Gerðarsafni. Öll eru hjartanlega velkomin.

Valgerður Briem (1914–2002) var myndlistarkona, kennari og frumkvöðull á sviði myndmenntar. Ævistarf hennar mótaðist í samspili eigin listsköpunar og kennslu, þar sem form, litir, efni og sjónræn hugsun urðu að leiðarljósi. Valgerður steig fyrst fram opinberlega sem myndlistarmaður á Haustsýningu Félags íslenskra myndlistarmanna árið 1980, þá 66 ára. Að baki þeirrar stundar lágu áratugir af einbeittri vinnu: teikningar, vatnslitir, vaxmyndir, skissur, letur og mynstur. Þegar fjölskylda Valgerðar færði Gerðarsafni um 1.640 verk á pappír árið 2006 varð umfang þessa ævistarfs fyrst fyllilega sýnilegt.

Gerðarsafn hlaut tveggja ára rannsóknarstyrk frá Safnasjóði til heildstæðrar frumrannsóknar á ævistarfi Valgerðar Briem, leidda af Cecilie Gaihede. Rannsóknin samtvinnar listfræðilega könnun á listsköpun hennar og miðlun í sýningu og útgáfu bókarinnar Myndvit – Arfleifð Valgerðar Briem, með fræðigreinum um listsköpun, kennslu og nálgun Valgerðar.

Aðgöngumiði á safnið gildir, frítt fyrir árskortshafa.

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

28
okt
Bókasafn Kópavogs
28
okt
Bókasafn Kópavogs
16:30

Myndaspjall

28
okt
Bókasafn Kópavogs
28
okt
Bókasafn Kópavogs
28
okt
Bókasafn Kópavogs
29
okt
Bókasafn Kópavogs
29
okt
Bókasafn Kópavogs
31
okt
03
nóv
Salurinn
19:30

Sweeney Todd

12
nóv
23
nóv
Bókasafn Kópavogs
01
des
19
des
Bókasafn Kópavogs

Sjá meira

Gerðarsafn

31
okt
01
nóv
Gerðarsafn
01
nóv
Gerðarsafn
11
nóv
Gerðarsafn
06
des
Gerðarsafn

Sjá meira