Gjörningurinn Má bjóða þér sykur? tvinnar saman íslenska pönnukökuhefð og „kvennaverk“.
Pönnukökurnar eru nýttar sem efniviður í hinar ýmsu athafnir: þurrka af og skúra, brjóta saman, stoppa í
göt eða slaka á með andlitsmaska.
Örþunnt hringlaga form, ilmur fyllir rýmið, hendur hreyfast í endurtekningu.
Mæla, hræra, hella.
Mjúk og þunn blanda, ausið yfir funheitt yfirborð þakið smjöri. Gyllist hægt og rólega og ber með sér
þennan undurfagra ilm sem vekur upp tilfinningar og minningar um venjur, um góðar stundir. Athöfnin
lifir í líkamanum.
Mæla, hræra, hella, baka, snúa.
Í endurtekningunni verður til ákveðin kyrrð, samtal milli handahreyfinga. Athöfnin er ákveðið mynstur,
brothætt og tímabundið, en sameinar fólk í gegnum bragð, hlýju og sameiginlega reynslu.
Mæla, hræra, hella, snúa, bera fram.
Má kannski bjóða þér sykur?
Innsetning sem sýnir leifar gjörningsins verður til sýnis í Gerðarsafni frá 29. ágúst til 4. september.
Um listamennina:
Gréta Jónsdóttir (1998) er íslensk myndlistarkona. Hún vinnur með fjölbreytta miðla og í verkum sínum
fjallar hún um samskipti, minningar, tilfinningar, líkamsímynd og tengsl. Viðfangsefni verkanna snúa oft
að sjálfsskoðun og úrvinnslu viðhorfa og hugmynda gjarnan í tengslum við áhorfendur þar sem mörk hins
persónulega og sameiginlega fá að mætast.
Heiðrún Sæmundsdóttir (1994) er íslensk myndlistarkona. Hún vinnur á mörkum myndlistar og
handverks, blandar saman óhefðbundnum efnivið og gömlum handverks aðferðum svo sem prjóni, hekli,
útsaum og vefnaði. Þannig skapar hún verk sem fjalla um persónuleg málefni sem tengjast sterkt inn í
feminíska hugmyndafræði.
Gréta og Heiðrún útskrifuðust með meistarapróf í Listkennslufræðum frá Listaháskóla Íslands 2026, þar
sem þær kynnast. Þetta er fyrsti gjörningurinn þeirra saman, en þær hafa áður unnið sem teymi að öðrum
verkefnum.












