Heilsaðu upp á starfsfólk Menningarhúsanna og taktu þátt í skemmtilegum ratleikjum og þrautaleikjum. Kaffi og léttar veitingar verða til sölu í Salnum og DJ Arnljótur Sigurðsson spilar létta tóna.
Salurinn býður upp á skemmtilega fjölskyldutónleika með Valgerði Guðnadóttur um Ferðafljóð. Komdu með í ævintýraferðalag með litla ferðafljóði þar sem allt getur gerst. Tónlist frá mismundandi löndum verður flutt og aldrei að vita nema áheyrendur þurfi að hjálpa til við framvindu ævintýrisins. Lítið tónlistarævintýri eftir Valgerði Guðnadóttur. Flutt af Valgerði, Sigurði Helga Oddssyni og Matthíasi Stefánssyni. Tónleikarnir hefjast kl. 14.
Á Bókasafni Kópavogs er boðið upp á fjölda ratleikja og þrautaleikja sem öll fjölskyldan getur tekið þátt í. Einnig eru hægt að kíkja á sýningu á myndum Sigrúnar Eldjárn í tilefni af 40 ára höfundarafmæli hennar.
Á Náttúrufræðistofu getur öll fjölskyldan skoðað nýju sýninguna Heimkynni, sem hefur að geyma hátt í 400 lífverur, og spreyta sig á skemmtilegri völundarhússgátu. Að auki verður fjölskyldan leyst út með fjölbreyttum náttúruverkefnum til að taka með sér heim.
Á Gerðarsafni geta gestir og gangandi skoðað útskriftarsýningu nemenda í hönnun og arkitektúr árið 2020. Þar verður einnig hægt að nálgast ratleik Menningarhúsanna auk þess sem haustdagskráin verður kynnt.
Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir svo lengi sem húsrúm, fjarlægðarmörk og fjöldatakmarkanir leyfa.