Fjölskyldustund á Laugardögum
Perlum hjörtu og gleðjum fólkið í kringum okkur á Valentínusardaginn.
Valentínusardagurinn er ár hvert haldinn hátíðlegur víða um heim á degi heilags Valentínusar 14. febrúar, en dagurinn á uppruna sinn í Evrópu á 14. öld. Í mörgum löndum er dagurinn tileinkaður ástinni en sums staðar er dagurinn helgaður vináttu í stað ástar.
Í fjölskyldusmiðjunni munum við perla hjörtu í tilefni dagsins sem við getum svo glatt okkar nánustu með.
Allt efni á staðnum og öll velkomin.



















