01.des 12:15

Hrist ryk á steini | Samtal um sýningu Ólafar Helgu Helgadóttur

Gerðarsafn

Sent út á Facebook.

Brynja Sveinsdóttir ræðir við Ólöfu Helgu Helgadóttur, myndlistarmann, í tilefni sýningarinnar SKÚLPTÚR / SKÚLPTÚR sem nú stendur yfir í Gerðarsafni en þar má sjá tvær einkasýningar á verkum Ólafar Helgu Helgadóttur og Magnúsar Helgasonar.
Sent út á Facebook.

—————-

Rauðar gardínur af æskuheimili Ólafar Helgu hafa umbreyst í risavaxinn skúlptúr á einkasýningu hennar, Hrist ryk á steini.
„Ég er búin að geyma þær í mörg ár og alltaf langað að gera eitthvað við þær en það hefur aldrei orðið að neinu fyrr en nú. Þær eru í æpandi rauðum lit og ég minnist þess hvernig birtan inni í húsinu varð rauðleit þegar sólin skein,“ segir Ólöf en verk hennar eiga sér stundum persónulegan undirtón, eru ögn dularfull.
„Í verkum mínum ýti ég hversdagslegu efni út fyrir sitt hefðbundna hlutverk og varpa þannig óvæntu ljósi á kunnugleg sjónarhorn.“
Húmor og dægurmenning einkenna líka verk Ólafar og við sjáum vísanir í listasöguna í mínímalískum en glettnum skúlptúrum hennar þar sem fundin efni og hversdagsleiki fá nýja vídd í sýningarsalnum.
Ólöf Helga Helgadóttir útskrifaðist frá Listaháskóla Íslands árið 2005 og lauk mastersnámi í myndlist frá Slade School of Fine Art í London árið 2010. Árið 2001 stundaði hún örnám við Kvikmyndaskóla Íslands.
Í verkum sínum ýtir Ólöf hversdagslegu efni út fyrir sitt hefðbundna hlutverk og varpar þannig óvæntu ljósi á kunnugleg sjónarhorn. Efnið sem hún notar hefur auk þess oft sögulega merkingu sem er mjög persónuleg. Ólöf býr og starfar á Siglufirði.
————-
„Sýningaröð Gerðarsafns, SKÚLPTÚR / SKÚLPTÚR, heiðrar minningu Gerðar Helgadóttur, myndhöggvara og frumkvöðuls, en ferill Gerðar einkenndist af sköpunargleði og tilraunum með ólík efni og aðferðir.
Listamennirnir sem nú sýna verk sín í Gerðarsafni nálgast einmitt sköpunina með framúrstefnulegri tilraunamennsku í hversdagsleg efni og óþrjótandi leik- og sköpunargleði. Þau nota ólíkan efnivið, oft á tíðum hversdagslega hluti sem settir eru í framandi og spennandi samhengi og biðla þannig til áhorfandans að slaka á rökhugsuninni og njóta áhyggjulaust.

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

03
maí
08
jún
Salurinn
13
maí
Bókasafn Kópavogs
14
maí
Bókasafn Kópavogs
14
maí
Salurinn
14
maí
Gerðarsafn
15
maí
Gerðarsafn
16
maí
Bókasafn Kópavogs
11:00

Get together

18
maí
Salurinn
18
maí
Salurinn
13:30

Vistarverur

24
maí
Salurinn
28
maí
04
jún
Bókasafn Kópavogs

Sjá meira

Gerðarsafn

14
maí
Gerðarsafn
15
maí
Gerðarsafn
24
maí
Gerðarsafn
15
jún
Gerðarsafn
21
jún
Gerðarsafn

Sjá meira