Hugleiðingar um vináttuna eftir börn í fjórðu bekkjum grunnskóla Kópavogs. Verkin, sem eru í formi texta og teikninga, voru unnin að loknum heimsóknum barnanna í Bókasafn Kópavogs í mars 2024 þar sem Bergrún Íris Sævarsdóttir, rithöfundur og teiknari, ræddi við þau um sköpunarkraftinn og vináttuna.
Sýningin er á annarri og þriðju hæð bókasafnsins og stendur yfir frá 24. apríl til 12. maí næstkomandi.
Sýningin er liður í Barnamenningarhátíð í Kópavogi 2024. Lista- og menningarráð Kópavogsbæjar styrkir hátíðina.