30.mar 13:30

Í draumheimum

Salurinn

Draumar og þrár eru viðfangsefni þessara heillandi tónleika þar sem fléttast saman sígildir smellir og splunkuný tónlist í túlkun Ragnheiðar Ingunnar Jóhannsdóttur, sópransöngkonu og Evu Þyri Hilmarsdóttur, píanóleikara.

Hér mætast draumkennd stef úr ólíkum áttum: Barnagælur, poppmúsík, leikhústónlist, einleiksverk og sönglög eftir nokkur af ástsælustu tónskáldum tónlistarsögunnar svo sem Franz Schubert, Jean Sibelius, Sergei Rachmaninov og Edvard Grieg en tónlistin á það öll sammerkt að hverfast um drauma.

Á tónleikunum verða að auki frumflutt þrjú verk sem samin voru sérstaklega fyrir tilefnið að beiðni Ragnheiðar og Evu Þyri af þeim Maríu Huld Markan Sigfúsdóttur, Jóhanni G. Jóhannssyni og Sigurði Sævarssyni.

Eldri íslensk einsöngslög fá að sjálfsögðu líka sinn sess, meðal annars verða flutt lög eftir Sigvalda og Selmu Kaldalóns, Jórunni Viðar og Sigfús Einarsson. Söngljóð verða í forgrunni en einnig hljóma þekkt einleiksverk sem lúta að draumum svo sem Träumerei eftir Robert Schumann og Liebestraum eftir Franz Liszt.

Á undan tónleikunum verður boðið upp á tónleikaspjall sem hefst klukkan 12:30. Aðgangur á tónleikaspjallið er ókeypis og öll hjartanlega velkomin á meðan húsrúm leyfir.

Deildu þessum viðburði

02
nóv
Salurinn
23
nóv
Salurinn
11
jan
Salurinn
01
feb
Salurinn
13:30

Dáland

01
mar
Salurinn
12
apr
Salurinn
03
maí
Salurinn

Sjá meira

13
nóv
Salurinn
14
nóv
Salurinn
27
nóv
Salurinn
17
des
Salurinn
18
des
Salurinn
20:30

Jól & Næs

29
jan
Salurinn
19
feb
Salurinn
12
mar
Salurinn

Sjá meira

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

02
nóv
Salurinn
02
nóv
Salurinn
02
nóv
25
apr
Salurinn
03
nóv
Bókasafn Kópavogs
04
nóv
Bókasafn Kópavogs
05
nóv
Bókasafn Kópavogs
05
nóv
Bókasafn Kópavogs
05
nóv
Bókasafn Kópavogs
06
nóv
Bókasafn Kópavogs

Sjá meira

Salurinn

02
nóv
Salurinn
02
nóv
Salurinn
02
nóv
25
apr
Salurinn
13
nóv
Salurinn
14
nóv
Salurinn
23
nóv
Salurinn
26
nóv
Salurinn
27
nóv
Salurinn

Sjá meira