04.okt 2026 16:00 - 18:00

Elín Ósk – 40 ára ferilstónleikar

Salurinn

Salurinn
7.500 - 8.900 kr.

Elín Ósk mun fara yfir farinn veg, 40 söngárin sín, en í október 1986 söng hún sitt fyrsta óperuhlutverk, Toscu úr samnefndri óperu eftir Puccini við Þjóðleikhúsið aðeins 25 ára gömul.

Hún fékk fádæma góða gagnrýni dagblaðanna. Mbl/Jón Ásgeirsson skrifaði m.a.: „Elín komst ekki aðeins vel frá verki heldur bókstaflega sló í gegn og hafði full tök á bæði leik og söng.“

DV/Eyjólfur Melsted skrifaði: „Dramatískan sópran á borð við Elínu Ósk hefur okkur bæði dreymt um og vantað um nokkurt skeið. Það er hrein unun að heyra hvernig hún nýtir sér sitt stóra raddsvið og sú er ekki í vandræðum að keyra í dýptinni.“

Síðan hefur Elín Ósk komið víða við á söngsviðinu og heillað áheyrendur og gagnrýnendur dagblaðanna með dramatískum tilþrifum og fíngerðum veikum tónum sem einnig er hennar sérsvið og fengið mikið hól fyrir.

Elín Ósk var útnefnd Bæjarlistamaður Hafnarfjarðar 2006 og árið 2009 hlaut hún riddarakross hinnar íslensku fálkaorðu fyrir framlag sitt til íslenskrar tónlistar og menningarlífs. Árið 1995 var hún tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunann fyrir hlutverk Leonoru í La forza del Destino eftir Verdi og 2003 fyrir hlutverk Lady Macbeth úr óperunni Macbeth eftir Verdi.

Á tónleikunum rifjar Elín Ósk upp ýmsa góða takta, m.a. aríur úr Toscu, Macbeth, Turandot og flytur atriði úr Cavalleri Rusticana ásamt Óperukór Reykjavíkur og syngur einnig ljúf íslensk, norræn og trúarleg sönglög.

Með henni til fulltingis verða: píanistarnir Antonía Hevesi, Peter Máté og Jónas Þórir ásamt Óperukór Reykjavíkur undir stjórn Arons Axel Cortes.

Kynnir og sögumaður á tónleikunum verður Bergþór Pálsson söngvari.

Deildu þessum viðburði

21
jún
Salurinn
09
sep
Salurinn
20:00

Fallin

04
okt
Salurinn
14
okt
Salurinn
17
okt
Salurinn
12
nóv
Salurinn
25
nóv
Salurinn
20
jan
Salurinn
04
feb
Salurinn

Sjá meira

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

09
jún
Bókasafn Kópavogs
10
jún
Bókasafn Kópavogs
10
jún
Bókasafn Kópavogs
10
jún
Bókasafn Kópavogs
11
jún
Salurinn
12
jún
Bókasafn Kópavogs
11:00

Get together

16
jún
Bókasafn Kópavogs
17
jún
Bókasafn Kópavogs
17
jún
Menning í Kópavogi

Sjá meira

Salurinn

11
jún
Salurinn
18
jún
Salurinn
21
jún
Salurinn
25
jún
Salurinn
09
sep
Salurinn
20:00

Fallin

17
sep
Salurinn
20:30

Halli & Gói

01
okt
Salurinn
04
okt
Salurinn
14
okt
Salurinn

Sjá meira