02.feb 2024 20:00 - 23:00

Innsýn í MOLTU á Safnanótt

Gerðarsafn

Innsýn í MOLTU ásamt Rósu Ómarsdóttur og nemendum af samtímadansbraut LHÍ.

Á Safnanótt gefst gestum kostur á að dvelja í innsetningunni MOLTU og kynnast henni frá ýmsum hliðum.

Frá 20:00 – 21:00 og 22:00 – 23:00 mun Rósa Ómarsdóttir, danshöfundur, vera á staðnum og bjóða upp á leiðsögn um innsetninguna fyrir gesti og gangandi.

Frá 21:00 – 22;00 munu nemendur af samtímadansbraut LHÍ flytja dans inni í MOLTU sem er innblásinn af innsetningunni.

Aðgangur er ókeypis og öll velkomin.

MOLTA er alltumlykjandi og þverfagleg innsetning og lifandi sýning. Listamaðurinn Rósa Ómarsdóttir býr til vistkerfi þar sem náttúrulegir ferlar umbreyta rýminu. Innsetningin bráðnar, lekur, brotnar niður, vex, blandast saman og gufar upp. Molta er myndlíking. Molta er í senn jarðvegur niðurbrots og frjósemi, þar sem úrelt og úrsérgengin fyrirbæri brotna niður og ný spretta upp. Í MOLTU skoðar Rósa hvernig vistkerfið er óstöðugt og tekur sífelldum breytingum. Hún kannar mörk manns, umhverfis og tækni þar sem allt hefur áhrif hvort á annað. Menn sameinast sveppum, plastögnum og rafeindum. Hvað sprettur upp úr moltunni?

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

31
okt
Bókasafn Kópavogs
31
okt
Salurinn
31
okt
03
nóv
Salurinn
19:30

Sweeney Todd

31
okt
Bókasafn Kópavogs
31
okt
01
nóv
Gerðarsafn
01
nóv
Gerðarsafn
02
nóv
Bókasafn Kópavogs
03
nóv
Bókasafn Kópavogs
12
nóv
23
nóv
Bókasafn Kópavogs
01
des
19
des
Bókasafn Kópavogs
05
des
23
des
Salurinn

Sjá meira

Gerðarsafn

31
okt
01
nóv
Gerðarsafn
01
nóv
Gerðarsafn
11
nóv
Gerðarsafn
06
des
Gerðarsafn

Sjá meira