09.maí 2026 12:30 - 13:00

Kópurinn | Austanátt tónleikar

Salurinn

Forsalur Salarins

Tónleikar kl. 12:30 og 13:45
Hefur þú velt fyrir þér hvernig hamingjusamur flóðhestur hljómar? Eða reynt að marsera í þrískiptum takti? Hvernig myndi lag um svart brauð vera? Heldur þú að þú getir dansað… djöfullega? Austanátt er splunkuný og orkumikil hljómsveit sem leikur fönk, tangó, diskó, čoček og allt þar á milli – en er alltaf dansvæn. Hljómsveitin er skipuð sjö blásurum og einum trommara og sækir innblástur til austari heimshluta. Við bjóðum börnum og fjölskyldum þeirra að stíga inn í hið ókunna og djamma með okkur í fimm, sjö, níu, ellefu og (stundum) fjórum.  

English: 
Have you ever wondered what a happy hippo sounds like? Or tried to march in triplet rhythm? What would a song about a black bread be like? Do you think you can dance… diabolically? Austanátt is a brand-new, high-energy band that plays funk, tango, disco, čoček, and everything in between – always with a danceable feel. The band is made up of seven brass players and a drummer, drawing inspiration from the eastern parts of the world. We invite children and their families to step into the unknown and party with us in five, seven, nine, eleven and (sometimes) four.

Krakkahátíðin Kópurinn 2026 
 
Hefur þú heyrt um heimsins mest listelskandi kóp? 
Hann býr auðvitað í Kópavogi!  
 
Kópurinn er krakkahátíð þar sem boðið er upp á ókeypis listviðburði og skemmtun fyrir alla fjölskylduna.  

Komdu og njóttu þess að hlusta á geggjaða tónlist, horfa á skemmtilegar leik-, dans- og sirkus-sýningar og taktu þátt í smiðjum sem virkja sköpunargáfuna.  

Allir viðburðirnir fara fram milli kl. 12 og 16 laugardaginn 9. maí í menningarhúsunum í Kópavogi og aðgangur er ókeypis.  

Verið öll hjartanlega velkomin, stór sem smá!  

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

16
jún
Bókasafn Kópavogs
17
jún
Bókasafn Kópavogs
17
jún
Menning í Kópavogi
18
jún
Salurinn
19
jún
Bókasafn Kópavogs
11:00

Get together

21
jún
Salurinn
23
jún
Menning í Kópavogi
23
jún
Bókasafn Kópavogs
10
ágú
16
ágú
Salurinn

Sjá meira

Salurinn

18
jún
Salurinn
21
jún
Salurinn
25
jún
Salurinn
10
ágú
16
ágú
Salurinn
23
ágú
Salurinn
09
sep
Salurinn
20:00

Fall

17
sep
Salurinn
20:30

Halli & Gói

01
okt
Salurinn
20:30

Una Torfa

04
okt
Salurinn

Sjá meira