Gerðarsafn tekur þátt í fjölbreyttri dagskrá Menningarhúsanna í Kópavogi, sem streymt er beint heim í stofu á meðan samkomubann stendur yfir. Viðburðirnir eru sendir út í samstarfi við Stundina og verða haldnir klukkan 13 á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum.
Miðvikudaginn 25. mars kl. 13 verður útsending frá Gerðarsafni þar sem Halla Oddný Magnúsdóttir spjallar við Einar Fal Ingólfsson ljósmyndara um sýninguna Afrit í Gerðarsafni.
Á sýningunni eru verk eftir myndlistarmennina Önnu Júlíu Friðbjörnsdóttur, Bjarka Bragason, Claudiu Hausfeld, Hallgerði Hallgrímsdóttur, Katrínu Elvarsdóttur, Pétur Thomsen og Þórdísi Jóhannesdóttur en sýningarstjóri er Brynja Sveinsdóttir.
Einar Falur hefur sinnt listgrein sinni, ljósmyndun, með margvíslegum hætti. Hann hefur haldið margar sýningar á verkum sínum, hérlendis og erlendis, verið sýningarstjóri að ljósmyndasýningum, ritstýrt eða komið að gerð ljósmyndabóka, sjálfur skrifað bækur, kennt áfanga í ljósmyndun við hina ýmsu skóla og haldið fyrirlestra víða um heim. Þá var hann lengi myndstjóri Morgunblaðsins og hefur nú umsjón með menningarumfjöllun blaðsins.
Hægt verður að sjá viðburðinn í gegnum forsíðu Stundarinnar, á Facebook-síðu Stundarinnar og Facebook-síðu Menningarhúsanna í Kópavogi.
Ýtið hér til að sjá myndskeiðið.