29.ágú 2024 17:00 - 18:00

Leiðsögn sýningarstjóra | Hamskipti

Gerðarsafn

Gerðarsafn

Verið hjartanlega velkomin á leiðsögn með Cecilie Gaihede sýningarstjóra um sýninguna Hamskipti. Leiðsögnin hefst kl. 17:00 í Gerðarsafni, fimmutdaginn 29. ágúst. Öll eru hjartanlega velkomin! Þennan dag er Fimmtudagurinn langi og því verður opið til 21:00 í Gerðarsafni.

Sýningin Hamskipti varpar ljósi á einstaka arfleifð Gerðar Helgadóttur í íslenskri myndlist sem ber vitni um djúpa leit hennar að fagurfræðilegum sannleika. Sköpunarkraftur Gerðar var mikill, hugmyndirnar óteljandi og athugun hennar djúp og leitandi. Gerður var frumkvöðull innan höggmyndalistar og brautryðjandi í þrívíðri abstraktlist á Íslandi. Hún ögraði viðurkenndum hugmyndum um myndlist með tilraunakenndri nálgun sinni. Færni hennar var gífurleg, hún tileinkaði sér tækni fjölda flókinna aðferða og vann þvert á miðla, skapandi, dansandi, svífandi lipur, en á sama tíma svo kröftug.

Tilraunakennd, stórhuga og framúrstefnuleg nálgun Gerðar markaði henni sess sem einn helsti myndhöggvari þjóðarinnar og kallast sterkt á við myndlist samtíma okkar. Listaverkin standa eftir sem ummerki um reynslu listamannsins og könnun hennar á umhverfinu, og auka skilning okkar á tilvistinni þá og nú. Sýningarstjóri er Cecilie Cedet Gaihede.

Samhliða sýningunni kom út bókin Leitað í tómið – Listköpun Gerðar Helgadóttur í ritstjórn Cecilie Gaihede.

Ljósmynd: Leifur Wilberg.

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

04
feb
Bókasafn Kópavogs
04
feb
Bókasafn Kópavogs
04
feb
03
maí
Gerðarsafn
04
feb
Bókasafn Kópavogs
04
feb
Gerðarsafn
04
feb
Náttúrusafn Kópavogs
06
feb
Bókasafn Kópavogs
11:00

Get together

06
feb
Gerðarsafn

Sjá meira

Gerðarsafn

04
feb
03
maí
Gerðarsafn
04
feb
Gerðarsafn
06
feb
Gerðarsafn
06
feb
Gerðarsafn
06
feb
Gerðarsafn
16
maí
06
sep
Gerðarsafn

Sjá meira