12.okt 13:00 - 15:00

Náttúruleiðsögn | Fléttufræðsla í Borgarholtinu

Náttúrufræðistofa Kópavogs

Veist þú hvað Brókarhverfa, Skyrsnurða, Þarmakarpa, Ryðkarta eða Landfræðiflikra eru? Hvort sem svarið er já eða nei, ættirðu að skella þér í fléttufræðslu á Náttúrufræðistofu Kópavogs laugardaginn 12. október kl. 13.  Fléttur eru merkilegar verur og draga nafn sitt af samlífi svepps og  þörungs. Þeirra líf er samofið og gerir þeim kleift að lifa á ólífvænlegustu stöðum jarðar. Af hverju ætli það sé?

Leiðsögnin hefst inni en síðan verður haldið út í göngu um holtið fyrir utan Náttúrufræðistofu Kópavogs þar sem margar fléttur lifa þar góðu lífi.  Vistfræðingurinn Jóhannes Bjarki Urbacic leiðir gönguna og fræðir okkur um þessar mögnuðu verur. Að henni lokinni geta gestir teiknað sína eigin fléttur og jafnvel gefið þeim einhver skemmtileg nöfn.

Þetta er tilvalin fjölskyldustund og ung og aldin hjartanlega velkomin.

Munið að koma klædd eftir veðri.

_____________

Viðburðurinn er liður í viðburðaröðinni Fjölskyldustundir á laugardögum sem styrkt er af lista- og menningarráði Kópavogsbæjar.

meko.is

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

03
maí
08
jún
Salurinn
10
maí
Bókasafn Kópavogs
10
maí
Bókasafn Kópavogs
10
maí
Gerðarsafn
11
maí
Bókasafn Kópavogs
11
maí
Gerðarsafn
11
maí
Bókasafn Kópavogs
16:00

Rauðhetta

11
maí
Menning í Kópavogi
11
maí
Bókasafn Kópavogs
11
maí
Náttúrufræðistofa Kópavogs
24
maí
Salurinn

Sjá meira