Ókeypis tónleikar með Strengjasveit Tónskóla Sigursveins í Gerðarsafni. Strengjasveitin er skipuð 26 nemendum á framhaldsstigi en stjórnandi hennar er Helga Þórarinsdóttir. Strengjasveitin er á leið í tónleika- og æfingaferð til Fíladelfíu þar sem sveitin er í samstarfi við YCO, Youth Chamber Orchestra. Tónleikarnir fara fram á sýningunni Fullt af litlu fólki sem nú stendur yfir í Gerðarsafni, ókeypis aðgangur og allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir.