Veitingastaðurinn Pure deli opnar útibú í Gerðarsafni fimmtudaginn 15. nóvember. Pure deli hefur verið starfræktur í Urðarhvarfi um nokkurt skeið og við fögnum því sannarlega að fá huggulegan stað, frábærar veitingar og góða stemningu á jarðhæð safnsins. Á boðstólum verða hollar samlokur og vefjur, súpur og djúsar en auk þess gott kaffi og meðlæti. Um helgar verður boðið upp á brunch við allra hæfi en á matseðli mái finna barnvæna rétti sem og veganvæna svo e-ð sé nefnt.
Opið alla daga frá 10-17.
Nánar um Pure deli hér.