Hannyrðaklúbburinn Kaðlín

Hannyrðaklúbburinn Kaðlín hittist alla miðvikudaga á 2. hæð aðalsafns. Heitt á könnunni og allir velkomnir! Nánari upplýsingar veitir Gréta Björg Ólafsdóttir, gretabjorg@kopavogur.is Fylgist með í Facebook-hópnum Hannyrðaklúbburinn Kaðlín | Bókasafn Kópavogs.

Barnabókagleði með Sunnu Dís Másdóttur

Sunna Dís Másdóttir rabbar um nýútkomnar, íslenskar barnabækur í notalegri stund á Bókasafni Kópavogs. Áherslan verður einkum á bækur fyrir börn frá átta ára aldri og upp úr en bókaormar á öllum aldri eru að sjálfsögðu hjartanlega velkomnir. Aðgangur er ókeypis.   Sunna Dís Másdóttir er skáld og rithöfundur og hefur fengist við margvísleg verkefni tengd […]

Leiðsögn um liti og form

Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir, myndlistarmaður, fjallar um sýninguna Geómetríu út frá sjónarhóli lita- og formfræði.