Kópurinn | Krakka-karókí með Söndru Barilli

Komdu og taktu lagið í Krakka-karókí í umsjón Söndru Barilli (sem mörg þekkja sem Mollý úr Ice Guys þáttunum). Veldu uppáhalds lagið þitt, stígðu á svið og láttu ljós þitt skína eins og alvöru poppstjarna! Come sing your heart out at Kids’ Karaoke hosted by Sandra Barilli (known to many as Molly from the Ice Guys series). Choose your favourite song, take the stage and shine like a real pop star! Krakkahátíðin Kópurinn 2026 Hefur þú heyrt um heimsins mest listelskandi kóp? Hann býr auðvitað í Kópavogi! Kópurinn er krakkahátíð þar sem boðið er upp á ókeypis listviðburði og skemmtun fyrir […]
Hádegistónar

Hádegistónleikar með Jasmín Kristjánsdóttur. Jasmín mun syngja lög frá sjötta og sjöunda áratugnum við undirspil gítarleikarans Fannars Sigurðssonar. Jasmín hefur verið í tónlistarnámi við Söngskóla Reykjavíkur og Fannar hjá Tónlistarskóla FÍH. Öll velkomin.
Fjölskyldustund í fjörunni

Velkomin í fjöruga fjölskyldustund þar sem við skoðum lífríki fjörunnar, leitum að kröbbum og kuðungum og fræðumst um þetta áhugaverða búsvæði á mörkum lands og sjávar. Hermann Dreki Guls, líffræðingur ásamt fleirum verður á staðnum til að leiðbeina gestum við lífveruleit og greiningar. Viðburðurinn hentar fjölskyldum með börn á öllum aldri og öðrum forvitnum. Fjöruferðin […]
Kópurinn | Dagdraumar

Brot úr dansverkinu Dagdraumar þar sem áhorfendur eru leiddir inn í undraheim stúlku sem ferðast inn í skóg og út að sjó, finnur vef og snoturt nef. Hún hittir dýr og girnist eiginleika þeirra. Bara ef hún gæti verið eins liðug og slanga eða fengið vængi eins og svanur! Í framhaldi af sýningunni taka við leikandi dansæfingar þar sem börn fá að […]
Kópurinn | Börnin vísa veginn

Myndlistasýning Á sýningunni Börnin vísa veginn má sjá samvinnulistaverk eftir nemendur í 4. bekk úr nokkrum grunnskólum Kópavogs. Verkin urðu til eftir heimsóknir í Gerðarsafn og Náttúrusafn Kópavogs þar sem börnin skoðuðu form og liti, fugla og umhverfið með augum bæði listafólks og vísindafólks. Í Gerðarsafni sóttu þau innblástur í verk Harðar Ágústssonar og rannsökuðu form og liti […]
Kópurinn | Austanátt tónleikar

Tónleikar kl. 12:30 og 13:45Hefur þú velt fyrir þér hvernig hamingjusamur flóðhestur hljómar? Eða reynt að marsera í þrískiptum takti? Hvernig myndi lag um svart brauð vera? Heldur þú að þú getir dansað… djöfullega? Austanátt er splunkuný og orkumikil hljómsveit sem leikur fönk, tangó, diskó, čoček og allt þar á milli – en er alltaf dansvæn. Hljómsveitin er skipuð sjö blásurum og einum trommara […]
Kópurinn | Austanátt tónleikar

Tónleikar kl. 12:30 og 13:45Hefur þú velt fyrir þér hvernig hamingjusamur flóðhestur hljómar? Eða reynt að marsera í þrískiptum takti? Hvernig myndi lag um svart brauð vera? Heldur þú að þú getir dansað… djöfullega? Austanátt er splunkuný og orkumikil hljómsveit sem leikur fönk, tangó, diskó, čoček og allt þar á milli – en er alltaf dansvæn. Hljómsveitin er skipuð sjö blásurum og einum trommara […]
Hádegisjóga í Huldustofu

International Day of Yoga Í tilefni af alþjóðadegi Jóga bíður indverska sendiráðið í samstarfi við Bókasafn Kópavogs upp á hádegisjóga með áherslu á vellíðan og til að stuðla að heilsu og friði á heimsvísu. Öll velkomin, bæði þeir sem vilja prófa jóga í fyrsta sinn og lengra komnir.
Fjölskyldujóga í barnadeild

International Day of Yoga Í tilefni af alþjóðadegi Jóga bíður Indverska sendiráðið í samstarfi við Bókasafn Kópavogs upp á fjölskyldujóga í barnadeild með áherslu á vellíðan og til að stuðla að heilsu og friði á heimsvísu. Öll börn og fjölskyldur þeirra eru velkomin.
Töfraloftbelgurinn | Leiksýning

Töfraloftbelgurinn er þátttökusýning fyrir börn á leikskólaaldri. Listahópurinn Kvistur sýnir 30 mínútna barnasýningu í barnadeild safnsins. Öll velkomin. Frítt inn. Sýningin er hluti af Ungi 2026 – alþjóðleg sviðslistahátíð fyrir börn. Töfraloftbelgurinn er þátttökusýning fyrir börn á leikskólaaldri (0-5 ára) og byggir á samnefndri barnabók eftir Hildi Kristínu Thorstensen sem fjallar um köttinn Prófessor og […]
Fiðrildin í garðinum

Langar þig að vita meira um fiðrildin í garðinum þínum? Að þessu sinni mun Sebastían Oddný Arnarson fjalla um fiðrildin í garðinum og hvað þú þarft til að skoðið þau, hvar þau halda sig og hvernig hægt er að stuðla að fjölbreyttara lífríki í ykkar eigin nærumhverfi. Viðburðurinn fer fram í Tilraunastofunni, innst í Náttúrusafni […]
Gjörningakvöld | Improv for Dance Enthusiasts

Improv for Dance Enthusiasts býður gestum á gjörningakvöld tileinkað skemmtilegri óhlýðni í Gerðarsafni!Í samstarfi við áhorfendur munu flytjendur kanna hvernig hægt sé að ögra ríkjandi viðmiðum án þess að umhyggja, skýrleiki og samþykki hverfi frá. Kvöldinu er sýningarstýrt af listasamsteypunni Improv for Dance Enthusiasts, sem mun færa áhorfendum verkfæri til þess að eiga í öruggum […]