Form tala saman – við byggjum heim

Verið velkomin listasmiðjuna Form tala saman – við byggjum heim í Gerðarsafni laugardaginn 28. mars frá kl. 13-15. Í smiðjunni verður leikið með grunnformin á frjálslegan hátt. Hver þátttakandi vinnur þrívíðan skúlptúr eða byggingu úr pappír og límböndum. Leiðbeinandi er Áslaug Íris Katrín Friðjónsdóttir myndlistarmaður. Smiðjann er haldin í tengslum við sýninguna Hörður með verkum eftir Hörð Ágústsson. […]
List og náttúra – Litir í náttúrunni

List og náttúra eru skemmtilegar og skapandi smiðjur þar sem við skoðum náttúruna í nýju ljósi! Viðfangsefni þessarar smiðju er litir í náttúrunni. Gestir fara í einfaldan leik sem hjálpar þeim við að koma auga á litbrigði í náttúrunni, og skapa listaverk innblásin af því sem við sjáum. Smiðjan verður í Náttúrusafni Kópavogs 18. mars, […]
Konur sem þorðu og gátu | Upphaf byggðar í Kópavogi

Rannveig Guðmundsdóttir, fyrrverandi bæjarfulltrúi og þingmaður, heldur áhugavert erindi um sögu merkra kvenna í stjórnmálum í Kópavogi. Í erindi sínu mun hún fjalla um Huldu Dóru Jakobsdóttur fyrrverandi bæjarstjóra sem var fyrsta konan á Íslandi sem varð bæjarstjóri og Svandísi Skúladóttur fyrrverandi bæjarfulltrúa sem var fyrsta konan er tók sæti í bæjarstjórn sem aðalfulltrúi. Þá […]
Jafnt aðgengi – Equal Access

Panel discussion: Inclusion, Participation & Empowerment Save the date! | Free event | Open to all women of foreign origin. „Jafn aðgengi” (“Equal Access”) is a project by W.O.M.E.N. in Iceland, created by women for women, to strengthen knowledge, participation, and equality among women of foreign origin living in Iceland. It is funded by the […]
Vigdís syngur vísur – Þýðingar Þórarins Eldjárns

Þórarinn Eldjárn hefur þýtt ógrynni erlendra ljóða og laga. Sumar þeirra þýðinga eru fólki kunnugar, svo sem lög úr leikritum Astrid Lindgren en aðrar hefur fólk enn ekki heyrt. Vigdís Hafliðadóttir, vísnasöngkona, mun ásamt hljómsveit sem skipuð er Halldóri Eldjárn, Úlfi Eldjárn, Daníel Helgasyni og Birgi Steini Theodórssyni, flytja fjölbreytt úrval laga sem eiga það […]
Klappleikir með Sigga&Ingibjörgu

Hvers konar tónlist má finna í öllum menningarsamfélögum? Klappleiki barna! Í þessari fjölskyldusmiðju, sem fram fer í forsal Salarins, verður farið í einfalda og skemmtilega klappleiki og söngva. Einu hljóðfærin sem við þurfum að taka með okkur erum við sjálf. Öll börn og fullorðnir fara syngjandi heim með nýja leiki sem vekja gleði og kátínu! […]
Syngjum um dýrin á Lindasafni!

Lífleg söngstund fyrir alla fjölskylduna í Lindasafni þar sem sungið verður um dýrin stór og smá. Öll fjölskyldan er boðin hjartanlega velkomin og tuskudýrin þeirra líka! Söngkonan Ragnheiður Silja Kristjánsdóttir leiðir stundina ásamt meðleikara sínum Guðmundi Grétari gítarleikara – og syngur lög þar sem heimur dýranna lifnar við; fuglar, húsdýr og kannski eitt og eitt villidýr… […]
Útgáfutónleikar Blood Harmony

Blood Harmony er samstarfsverkefni systkinanna Arnar Eldjárn, Aspar Eldjárn og Bjarkar Eldjárn sem hófst snemma árs 2021 þegar heimsfaraldurinn skall á og sökum þess voru þau flutt í heimahagana fyrir norðan. Þau umbreyttu kjallaranum á æskuheimilinu Tjörn í upptökustúdíó og hófu að taka upp lög sem Örn og Ösp höfðu bæði samið í gegnum árin […]
Fyrirlestur | Studio Studio um Dieter og Hörð

„Þegar Dieter heimsótti Hörð og sýndi honum verk sín áttaði Hörður sig strax á því að verið væri að flytja inn allra nýjustu hugmyndir í grafískri hönnun og myndlist.“ Verið velkomin á fyrirlestur Studio Studio (Arnar Freyr Guðmundsson og Birna Geirfinnsdóttir) um samstarf og áhrif Dieter Roth og Harðar Ágústssonar þann 18. mars klukkan 18:00. […]
Bókavogur | Opnunarhátíð

Öll fjölskyldan er boðin hjartanlega velkomin í Bókasafn Kópavogs laugardaginn 14. mars kl. 14-16 á skemmtilega dagskrá sem tengist bókum og bóklestri. Aðgangur er ókeypis og öllum opinn. Viðburðurinn er opnunarhátíð Bókavogs sem er lestrarátak sem fram fer í Kópavogi vikuna 14. -20. mars. Fram koma Gunnar Helgason rithöfundur, Þórunn Arna leikkona opnar fjársjóðskistu Astridar […]
Skáld í Kópavogi | Menning á miðvikudögum

Sitjandi ,,bókmenntaganga“ með Frímanni Frímann Ingi Helgason fer með gesti í bókmennta ,,gönguferð“ í huganum um Kópavog og fjallar um merk skáld sem þar hafa búið. Viðburðurinn fer fram á 2. hæð Bókasafnsins og mun Frímann sýna gestum skemmtilegar myndir af gömlum húsum og bæjarstæðum þar sem skáld á borð við Guðmund Haglín, Jón Vör […]
Hvað er sníkjulífi? – Líffræði, lífsferlar og vistfræðilegt mikilvægi sníkjudýra

Sníkjulífi er talið hafa þróast sjáfstætt í náttúrunni oftar en tvö hundruð sinnum, og fjörtíu prósent allra þekktra dýrategunda lifa sníkjulífi. Allt frá litlum einfrumungum úr hópi frumdýra til fjölfrumunga í hópi spendýra finnast tegundir sem hafa þróað með sér misflókna lífsferla sem allir fela í sér að stela næringu frá öðrum lífverum. Þrátt fyrir […]