NORÐFÓLK – Það mælti mín móðir – Útgáfutónleikar

Þjóðlagatvíeykið Norðfólk gefur út sína fyrstu breiðskífu: Það mælti mín móðir. Af því tilefni verða haldnir útgáfutónleikar í Salnum Kópavogi 17.maí kl. 19:00.  Norðfólk hefur undanfarin ár sérhæft sig í þjóðlögum og hefur unnið með fjölda listamanna á Íslandi og í Noregi. Á plötunni er að finna íslensk og norsk þjóðlög í útsetningum eftir tvíeykið […]

Morgunstund í myndlæsi

Verið hjartanlega velkomin á Morgunstund í myndlæsi fyrir fullorðna föstudaginn 6. mars kl. 10:00 í Gerðarsafni, þar sem við þar sem við tökum fram óvænt verk úr safneign Gerðarsafns og greinum það í sameiningu. Þorgerður Þórhallsdóttir, verkefnastjóri fræðslu og viðburða í Gerðarsafni, leiðir samræðurnar, sem gestir taka þátt í. Morgunstund í myndlæsi er ný viðburðaröð […]

Litafókus með Eygló Harðardóttur

Sjónræn skynjun og vangaveltur um afstæði litanna eru grunnstefin í leiðsögn Eygló Harðardóttur um sýninguna Hörður. Fókusnum verður beint að innbyrðis áhrifum lita á hvern annan í völdum verkum Harðar Ágústssonar, litanotkun verkanna borin saman og og ólík lita-áhrif og lita-hlutföll skoðuð.  Á sýningunni eru verk Harðar sem birta nálgun hans á form- og litafræði á árunum […]

Netöryggi

Í erindi sínu fer Eva Valdís Jóhönnudóttir, sérfræðingur á Svikavakt Íslandsbanka, yfir það allra helsta sem þarf að hafa í huga þegar það kemur að netöryggi og netsvikum – hvernig má bera kennsl á svik, hvað á að gera ef upp kemur grunur og hvernig góðar netöryggisvenjur styðja við fjárhagslega heilsu.

Íslenskar lækningajurtir, söfnun þeirra, verkun og notkun

Steinn Kárason, garðyrkjumeistari og M.Sc. í umhverfisfræðum, segir frá algengum íslenskum drykkjar- og lækningajurtum og leiðbeinir um söfnun þeirra, verkun og notkun.  Hann veitir jafnframt tilsögn í að útbúa jurtate, grasaseyði og hvannasúpu og veitir innsýn í þróun og sögu grasalækninga og nýjar rannsóknir sem styðja reynslu forfeðranna.  Stiklað verður á stóru í sögulegu samhengi og áhersla lögð á […]

Siggi Björns | Sjómannadagstónleikar

SJÓMANNADAGUR Í SALNUM – SIGGI BJÖRNS LÍTUR UM ÖXL Flateyringurinn og heimshornaflakkarinn Siggi Björns heldur tónleika í Salnum í Kópavogi á sjálfan sjómannadaginn, 7. júní.Þegar Siggi var að alast upp fyrir vestan skiptist árið í tvennt: fyrir og eftir jól – og fyrir og eftir sjómannadag. Spakur maður sagði eitt sinn um Vestfirðinga: „Þeir eru […]

Leiðsögn | Ingunn Fjóla um form og liti Harðar

Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir, myndlistarmaður, fjallar um sýninguna Hörður út frá sjónarhóli lita- og formfræði. Á sýningunni eru verk Harðar sem birta nálgun hans á form- og litafræði á árunum 1955-1978. Í formrænni könnun hans má finna það svið þar sem arkitektinn og ljóðskáldið tvinnast hvað mest saman, þar sem rannsakandinn og skaparinn ná saman í […]

List og náttúra

List og náttúra er einföld smiðja þar sem leitast við að skapa úr náttúrulegum og sjálfbærum efniviði. Smiðjan verður haldin í Náttúrusafni Kópavogs 25. febrúar, kl. 16-17:00. Smiðjan er liður af stærra verkefni sem unnið er í samstarfi Gerðarsafns og Náttúrusafn Kópavogs. Tilgangurinn er að skapa tíma og rými fyrir samverustundir fjölskyldunnar. Börnin vinna með […]

Grísk matar- og menningarhátíð | Fjölskyldustund á laugardögum

Grísk matar- og menningarhátíð á fjölskyldustund þann 18. apríl á aðalsafni Bókasafni Kópavogs. Dagskrá **12:00 – 12:10** Welcome with Greek refreshments and sweets **12:10 – 12:30** Welcome music performance by Nina & Elias  **12:30 – 13:30** Kids Workshop led by Anastasia: * Olive wreaths made from cardboard (pre-cut leaves will be provided) * Simple ancient […]

Gjörningakvöld | Haraldur Jónsson, Sölvi Halldórsson, petals, Gígja Jónsdóttir og Vena Naskrecka

Verið hjartanlega velkomin á gjörningakvöld Gerðarsafns og Hamraborg Festival þann 26. Febrúar klukkan 20:00. Fram koma:Haraldur JónssonSölvi Halldórssonpetals ásamt Sólrúnu Mjöll Kjartansdóttur, Ægi Sindra Bjarnasyni og Ingibjörgu TurchiGígja Jónsdóttir og Vena Naskrecka Sýningarstjórn: Hamraborg Festival / Pétur Eggertsson.Öll velkomin! Um listamennina: Í verkum Haraldar fléttast ólíkar efniskenndir, tungumál og hljóðmyndir saman á margslunginn hátt og […]

Lausnin á matarsóun | Vika 17

Alþjóðleg vika heimsmarkmiðanna á bókasöfnum ✨ Hádegisfyrirlestur á Bókasafni Kópavogs – mánudaginn 20. apríl kl. 12:15 ✨ Hvernig getur lausnin á matarsóun verið bæði bragðgóð, skapandi og sparað okkur pening? Dóra Svavarsdóttir, formaður Slow Food á Íslandi og matreiðslumeistari, leiðir okkur í gegnum þetta brýna og spennandi málefni á hádegisfyrirlestri á Bókasafni Kópavogs. 🥕 Hvað er matarsóun og hvernig […]

Jafnt aðgengi – Equal Access

Your Rights. Your Voice. Your Community.For Women of Foreign Origin in Kópavogur Free event | Open to all women of foreign origin living in Kópavogur Women of foreign origin make up an important and vibrant part of Kópavogur’s community. At the same time, many face barriers such as language challenges, limited access to information, social […]