Hatha jóga

Boðið verður upp á hatha jóga í fjölnotasal aðalsafns alla fimmtudaga frá 16:30 til 17:30. Gestir eru beðnir um að hafa jógadýnu meðferðis að heiman og eru hvattir til að mæta í þægilegum fötum. Hatha jóga er jafnvægi krafts og liðleika, hugar og líkama. Stöðum er haldið í langan tíma og öndun notuð til að gefa meiri styrk og teygju í vöðvana. Tímar enda á slökun og hugleiðslu. […]
Gáfnaljós | Heimanámsaðstoð

Í Gáfnaljósi býðst grunnskólanemum að koma á aðalsafn alla miðvikudaga kl. 14:30 til 16:00 og fá aðstoð við heimanám og lestur. Kennari verður á staðnum. Aðstoðin er ókeypis og allir grunnskólanemar eru velkomnir. Brainy Bunch homework club meets Wednesdays at the main branch from 14:30 to 16:00. Elementary school students are welcome to drop in […]
Ritsmiðja með William Ryan | Writing workshop

Írski rithöfundurinn William Ryan kennir byrjendum og lengra komnum þá tækni sem þarf til að skrifa spennu- eða glæpasögu. Sérstök áhersla verður lögð á sögugerð (hvernig hugmynd að sögu verður að bók) og persónusköpun (hvernig skrifa á persónur sem gera söguna lifandi). Þátttaka er ókeypis en takmarkaður fjöldi kemst að. Athugið að smiðjan fer fram á ensku. Skráning fer fram hér. Join Irish author William Ryan for a writing workshop […]
Gáfnaljós | Heimanámsaðstoð

Í Gáfnaljósi býðst grunnskólanemum að koma á aðalsafn alla miðvikudaga kl. 14:30 til 16:00 og fá aðstoð við heimanám og lestur. Kennari verður á staðnum. Aðstoðin er ókeypis og allir grunnskólanemar eru velkomnir. Brainy Bunch homework club meets Wednesdays at the main branch from 14:30 to 16:00. Elementary school students are welcome to drop in […]
Hljóðfærasmiðja á Lindasafni | Frestað

Frestað vegna hertra sóttvarnaraðgerða stjórnvalda. Ásthildur Ákadóttir, tónlistarkona, píanókennari og meistaranemi í listkennslu við LHÍ, leiðir sögu- og hljóðfæragerðarsmiðju undir áhrifum frá ævintýrum H. C. Andersen fyrir börn og fjölskyldur. Hristur, panflautur, gítarar og fleira búnar til úr fundnum efniviði sem verða uppistaðan í litríkum ævintýraheimi. Ásthildur var ein Sumarspíra menningarhúsanna í Kópavogi sumarið 2021 […]
Slökunarjóga

Boðið er upp á létt slökunarjóga í fjölnotasal aðalsafns alla mánudaga kl. 12:00 til 12:30. Hvorki er þörf á íþróttaklæðnaði né jógadýnu. Aðgangur ókeypis og öll velkomin á meðan húsrúm leyfir.
Hannyrðaklúbburinn Kaðlín

Hannyrðaklúbburinn Kaðlín hittist alla miðvikudaga á 2. hæð aðalsafns. Heitt á könnunni og allir velkomnir! Öll velkomin á meðan húsrúm leyfir. Nánari upplýsingar veitir Gréta Björg Ólafsdóttir, gretabjorg@kopavogur.is Fylgist með í Facebook-hópnum Hannyrðaklúbburinn Kaðlín | Bókasafn Kópavogs. Kaðlín is the Kópavogur Public Library’s knitting club. Meetings are on Wednesdays at 2 pm at the main branch, Hamraborg 6a. […]
Æfingin skapar meistarann | Spjallið

**English below Æfingin skapar meistarann | Spjallið er samstarfsverkefni Bókasafns Kópavogs og Rauða krossins. Verkefnið er ætlað fólki af erlendum uppruna til að æfa sig í íslensku og kynnast öðru fólki í leiðinni. Nauðsynlegt er að hafa einhvern grunn í íslensku til að geta tekið þátt. Hist verður í Fjölnotasal á 1. hæð annan hvern […]
Hannyrðaklúbburinn Kaðlín

Bakar þú bara vandræði? Gengur ómögulega að sníða stakk eftir vexti? Lendir smiðshöggið iðulega á svo röngum stað að allt heila galleríið hrynur til grunna? Það geta ekki allir verið góðir í öllu. En það eru allir velkomnir í hannyrðaklúbbinn Kaðlín hvort sem þeir eru með tvo þumalfingur eða tíu. Við lofum að gera ekkert […]
Hatha jóga

Boðið verður upp á hatha jóga í fjölnotasal aðalsafns alla fimmtudaga frá 16:30 til 17:30. Gestir eru beðnir um að hafa jógadýnu meðferðis að heiman og eru hvattir til að mæta í þægilegum fötum. Hatha jóga er jafnvægi krafts og liðleika, hugar og líkama. Stöðum er haldið í langan tíma og öndun notuð til að gefa meiri styrk og teygju í vöðvana. Tímar enda á slökun og hugleiðslu. […]
Foreldramorgunn

Foreldramorgnar eru á aðalsafni alla fimmtudaga kl. 10:00. Frábært tækifæri fyrir foreldra og ung börn þeirra til að hittast og eiga rólega stund saman á safninu. Gestafyrirlesarar koma tvisvar í mánuði. Fylgist með í Facebook-hópnum Foreldramorgnar | Bókasafn Kópavogs. Ókeypis aðgangur og öll velkomin á meðan húsrúm leyfir.
Lesið fyrir hunda

Bókasafn Kópavogs ásamt Vigdísi, vinum gæludýra á Íslandi, býður börnum að lesa fyrir hunda sem hafa fengið sérstaka þjálfun í að hlusta á upplestur. Lestrarstundin er ekki ætluð börnum sem glíma við hundahræðslu heldur er markmiðið að auka öryggi við lestur, ekki síst hjá þeim sem eiga við lestrarörðugleika að stríða. Hundurinn hjálpar barninu að […]