Hádegistónar FÍH | Óður til móður

Í hádeginu þann 30. apríl næstkomandi munu söngnemendur úr Tónlistarskóla FÍH syngja ljúfa tóna fyrir gesti. Tónleikarnir bera yfirskriftina Óður til móður og verða flutt lög um, til og frá mæðrum. Tilvalið er að taka sér stund frá önnum dagsins og hita upp fyrir mæðradaginn 10. maí. Undirleikur er í höndum Inga Bjarna Skúlasonar. Brynjólfur […]
Hádegistónar FÍH | Lögin hans KK

Tónleikar sem frestað var í mars vegna veðurs eru nú komnir með nýja dagsetningu 21. maí. Í hádeginu þann 21. maí næstkomandi munu söngnemendur úr Tónlistarskóla FÍH syngja ljúfa tóna fyrir gesti. Tónlistarmaðurinn KK átti stórafmæli daginn sem tónleikarnir voru upphaflega á dagskrá og ætla flytjendur því að flytja lög eftir hann. ‐——- Agnes Sólmundsdóttir […]
Hádegistónar FÍH / Mansöngvar – Lög eftir íslenskar konur

Í hádeginu þann 26. febrúar næstkomandi munu söngnemendur úr Tónlistarskóla FÍH, Hildur Jónsdóttir, Þorvaldur Sigurbjörn Helgason og Jóna Svandís Þorvaldsdóttir nokkur vel valin lög eftir íslenskar tónlistarkonur í tilefni þess að Konudagurinn er nýafstaðinn. Fullkomin leið til að taka stund frá önnum dagsins og njóta hækkandi sólar. Um undirleik sér Valur Þór Hjálmarsson. Hildur Jónsdóttir […]
Sprettikortasmiðja

Þátttakendur læra einfaldar aðferðir til að búa til „pop-up“-kort (sprettikort) og uppgötva hvernig pappírsbrot, klipp og litir geta breytt flötum pappír í litla heima sem spretta fram. Umsjón með smiðjunni hefur Iva Franjic.Smiðjan fer fram á íslensku og ensku auk þess sem aðstoð býðst á sænsku og króatísku. Smiðjan hentar öllum aldri og allur efniviður […]
Kórónusmiðja | Vetrarfrí

Gerum ævintýrakórónur saman.Allt efni á staðnum. Öll velkomin á meðan húsrúm leyfir. Vetrarfrí í grunnskólum Kópavogs 19.-20. febrúar Aðalsafn 19. febrúar 10:00-11:30 | Bíósýning12:00-14:00 | Kórónusmiðja12:00-14:00 | Mangasmiðja – myndasögugerð (11+)14:00-16:00 | LeðurBLÖKU teiknismiðja með Rán Flygenring (Náttúrusafn Kópavogs)15:00-17:00 | Upplýsingaóreiða: Öryggi barna á netinu (bás í barnadeild) 20. febrúar 08:00-18:00 | Litum dýramyndir (Náttúrusafn […]
LeðurBLÖKUteiknistofa með Rán Flygenring

Mynd- og rithöfundurinn Rán Flygenring mun lesa upp úr nýjustu bók sinni Blöku sem fjallar um þau Vöku, Kókos og pabba. Á ferðum sínum koma þau auga á rammvillta leðurblöku og áform þeirra fljúga út í veður og vind. Fjölskyldum er svo boðið upp á ólíkar teikniæfingar sem virkja ímyndunaraflið og teiknivöðvana í vetrarfríinu. Þátttakendur […]
Krakkaleiðsögn um Náttúrusafnið

Komdu í krakkaleiðsögn! Í vetrarfríinu ætlar Náttúrusafnið að bjóða kátum krökkum uppá skemmtilega og fræðandi leiðsögn um safnið.Við munum skoða sýninguna Brot úr ævi jarðar og munum fjalla um allt frá frumum upp í sólkerfi. Aðgangur ókeypis og öll hjartanlega velkomin. // Join Our Kids’ Guided Tour!During the winter break, the Natural History Museum invites […]
Krakkaleiðsögn um Náttúrusafnið

Komdu í krakkaleiðsögn! Í vetrarfríinu ætlar Náttúrusafnið að bjóða kátum krökkum uppá skemmtilega og fræðandi leiðsögn um safnið.Við munum skoða sýninguna Brot úr ævi jarðar og munum fjalla um allt frá frumum upp í sólkerfi. Aðgangur ókeypis og öll hjartanlega velkomin. // Join Our Kids’ Guided Tour!During the winter break, the Natural History Museum invites […]
Together | Fjöltyngd brúðusmiðja

Verið velkomin í fjöltyngda brúðusmiðju í Vetrarfríinu fimmtudaginn 19. febrúar frá kl. 13:00-15:00 í Gerðarsafni. [Polski poniżej] Í smiðjunni fá þátttakendur tækifæri til að búa til sínar eigin brúður úr alls kyns litríkum og skemmtilegum efnivið undir leiðsögn listamannanna Styrmis Arnar Guðmundssonar og Agötu Mickiewicz sem tala íslensku, ensku og pólsku. Smiðjan er opin gestum […]
Aðalsteinn Ingólfsson | Leiðsögn um Hörð

Verið hjartanlega velkomin á leiðsögn Aðalsteins Ingólfssonar um sýninguna Hörður þann 19. febrúar klukkan 12:15 í Gerðarsafni. Aðalsteinn Ingólfsson, f. 1948, nám í listasögu í Bretlandi, Svíþjóð og Ítalíu. Hann kenndi einnig við Myndlista-og handíðaskólann, Listaháskólann og Háskóla Íslands. Gagnrýni og menningartengd skrif við Vísi, DV, Fréttablaðið og RÚV. Hefur starfað við Listasafn Reykjavíkur, Listasafn […]
Skrímsli á Lindasafni

Fjölskyldustund á Laugardögum Skrímslasmiðja Í smiðjunni gefum við ímyndunaraflinu lausan tauminn og sköpum okkar eigin skrímsli og furðuverur. Það er Alexandra Dögg Steinþórsdóttir, rit- og myndhöfundur sem leiðbeinir og eru börn sérstaklega hvött til að skapa skrímsli út frá eigin áhuga og reynslu og skoða hvernig ímyndunaraflið getur breytt hversdagslegum fyrirbærum í furðuverur
ÞYKJÓ | Undir og yfir, undir og yfir, undir og yfir…

Verið velkomin á fjölskyldustund með Þykjó laugardaginn 28. febrúar í Gerðarsafni. Smiðjan hentar þátttakendum frá 4 ára aldri…til allavegana 104 ára! Við dáleiðumst inn í ferðalag ullarþráðarins sem hlykkjast upp og niður í vefnaði. Efniviðurinn er litríkur og áferðir textílsins fjölbreyttar. Smám saman myndast leikandi mynstur og hrynjandi. Viðburðurinn er í tengslum við sýninguna Hörður sem […]