12.jan 15:30 - 16:15

Samtal | Guðbjörg R. Jóhannesdóttir

Gerðarsafn

Gerðarsafn

Guðbjörg R. Jóhannesdóttir ræðir við Gunndísi Ýr Finnbogadóttur og Þorgerði Ólafsdóttur um sýninguna og verkefnið Óstöðugt land, sunnudaginn 12. janúar kl. 15:00 í Gerðarsafni. Öll eru velkomin!

Guðbjörg R. Jóhannesdóttir er heimspekingur og dósent við listkennsludeild Listaháskóla Íslands. Umhverfisheimspeki hefur verið í forgrunni í verkum hennar frá því hún hóf nám í heimspeki við Háskóla Íslands. Hún lauk MA prófi í Values and the Environment frá Lancaster University árið 2006 og sneri svo aftur til Háskóla Íslands þaðan sem hún lauk doktorsverkefni um landslag og fagurferðilegt gildi árið 2015. Rannsóknir hennar beinast að umhverfisfagurfræði, umhverfissiðfræði, fyrirbærafræði, skynjaðri þekkingu, líkamleika, landslagi, þverfaglegu starfi og þátttöku. Hún hefur birt fjölda greina og bókarkafla og haldið erindi víða hérlendis og erlendis. Bók hennar Vá! Ritgerðir um fagurfræði náttúru kom út í lok árs 2020.

Sýningin Óstöðugt land byggir á samstarfi Gunndísar og Þorgerðar en þær hafa tekið viðtöl við einstaklinga sem ferðuðust til Surtseyjar á árunum 1963 – 2022 með fjölbreytt markmið og ólíkan tilgang. Viðtalsverkið grundvallast á örfyrirbærafræðilegum viðtölum (e. micro – phenomenological interviews) en sú aðferð gengur út á það að fá viðmælendur til að lýsa reynslu sinni af umhverfi Surtseyjar og varpa fram lýsandi mynd af upplifun sinni og minningar af fyrri (líkamlegri) reynslu. 

Viðtölin voru tekin upp í Surtseyjarstofu á Náttúrufræðistofnun Íslands (NÍ), þar sem heimildarsafn Surtseyjarfélagsins er varðveitt ásamt ótal verðmætum steinasýnum frá eyjunni sjálfri frá upphafi eldgoss. Viðtölin mynda uppistöðuna í nýrri vídeóinnsetningu sem ber titilinn Óstöðugt land og eru skrásett með ýmsu móti, sem myndbandsupptökur, afritun í textaformi, gegnum hljóð og teikningar. Aðstoð við klippivinnu veitti Bjarni Þór Pétursson og klippivinna er í samstarfi við Hrafnkel Tuma Georgsson. Sýningastjórn Becky Forsythe. 

Myndlistarmennirnir vilja þakka þátttakendum fyrir sitt framlag til Óstöðugs lands. Þau eru Anna Líndal, Birgir Vilhelm Óskarsson, Birna Lárusdóttir, Helgi Birkis Huginsson og Hildur Hákonardóttir.

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

05
júl
Gerðarsafn
07
júl
Bókasafn Kópavogs
08
júl
Bókasafn Kópavogs
09
júl
Bókasafn Kópavogs
09
júl
Bókasafn Kópavogs
10
júl
Salurinn
11
júl
Bókasafn Kópavogs
11:00

Get together

13
júl
Menning í Kópavogi
14
júl
Bókasafn Kópavogs

Sjá meira

Gerðarsafn

05
júl
Gerðarsafn
23
júl
Gerðarsafn
06
ágú
Gerðarsafn
08
ágú
Gerðarsafn
20
ágú
02
nóv
Gerðarsafn
20
ágú
Gerðarsafn

Sjá meira