Bókasafnið breytist í fjörugan og hljóðlátan næturklúbb á Safnanótt þegar boðið verður upp á Silent diskó á annarri hæð safnsins en Silent diskó er frábær leið til að upplifa tónlist og rými á glænýjan hátt.
Plötusnúður þeytir skífum sem þú færð beint í eyrað í gegnum þráðlaus heyrnartól sem verða á staðnum. Sáraeinfalt er að flakka á milli rása til að velja tónlistina sem kemur þér í stuð.
Komið, dansið og upplifið.