Stjarna Sólmundar Hólm hefur skinið skærar með hverju árinu og nú er hann einn vinsælasti skemmtikraftur landsins. Eftirhermur hans eru hver annarri betri auk þess sem Sóli er fyrirtaks söngvari og höfundur. Ef að líkum lætur fáum við að heyra raddir Pálma Gunnars, Gylfa Ægis og fleiri kumpána óma um Salarkynnin þegar hann heimsækir Jón Ólafsson.
Af fingrum fram er spjalltónleikaröð með Jóni Ólafssyni sem oftar en ekki nær gestum sínum á flug með söng, sögum og einstakri kvöldstund.