Fimmtudaginn 13. ágúst verður síðasti Sumarbræðingur Menningarhúsanna í Gerðarsafni. Safnið verður opið lengur eða til kl. 21:00 samhliða tónleikaröðinni Sumarjazz sem fer fram í Salnum. Veitingastaðurinn Pure Deli er lokaður vegna samkomutakmarkanna, en boðið verður upp á frítt kaffi og vatn. Í Stúdíói Gerðar, fræðslurými Gerðarsafns, verða dregnir fram vatnslitir og safngestum gefið færi á að skapa og upplifa saman.
Aðgangur ókeypis og allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir.
Tweet