Sundballetthópurinn Eilífðin stendur fyrir sundballetttíma í Kópavogslaug á Sundlauganótt
Mynsturæfingar, samhæfing, klisjur, hlátur, frábær tónlist og gleði. Við lærum þvottavélina, lærum krókódílatæknina, síldartorfuna og sitthvað fleira. Tíminn er opinn öllum og ekki þarf að skrá sig sérstaklega, en þátttakendur þurfa að vera fullsyndir og ná til botns til að taka þátt.
Sundballetthópurinn Eilífðin skaffar sundhettur fyrir þátttakendur. Tíminn hefst kl. 20 ofan í lauginni.
Sundballethópurinn Eilífðin eru systurnar Margrét Erla Maack, fjöllistadís og Vigdís Perla Maack, sviðslistakona. Hópurinn var stofnaður 2017 en stefnir nú að því að stækka hópinn. Ekki er um sýningu að ræða, heldur þátttökutíma.
Ókeypis er í sund á sundlauganótt.