02.feb 18:30 ~ 03.feb 00:00

Sviðsmyndir / Scenarios

Menning í Kópavogi

Kópavogskirkja
Ljóslistaverk eftir Eygló Harðardóttur

Sviðsmyndir er nýtt ljóslistaverk eftir Eygló Harðardóttur, gert sérstaklega fyrir Vetrarhátíð í Kópavogi 2024. Verkið, sem er í næmu samtali við form Kópavogskirkju og glerlistaverk Gerðar Helgadóttur, verður sýnt á austurhlið Kópavogskirkju, föstudagskvöldið 2. febrúar og laugardagskvöldið 3. febrúar, frá 18:30 – 24:00 bæði kvöldin.

____________

Verkið Sviðsmyndir er vídeóverk sem leggst eins og gegnsæ himna á Kópavogskirkju. Það er byggt upp af fimm sviðsmyndum sem voru lýstar upp og kvikmyndaðar. Sviðsmyndirnar eru: Málverk, Tveir glerskúlptúrar, Lagskipt glerverk, Bókverk og Teikningar á lituðu gleri.

Sviðmyndirnar byggja á samhverfum og lagskiptum formum kirkjunnar, skynjuðum skala og steindum kirkjugluggum Gerðar Helgadóttur sem birtast sem hreyfing ljóss og lita inni í byggingunni sjálfri.

Verkið Sviðsmyndir er í grunninn unnið á handvirkan hátt, efniviðurinn er ljós, hreyfing, litað gler og pappír. Öll stafræn eftirvinnsla og klipping er trú upptökunum. Að því leyti er verkið mjög handvirkt (analogue) og hefur skýrskotun til marglaga birtingarmynda ljóss og efnis og hreyfinga handanna.

Tökumaður og aðstoð við lýsingu: Sigurður Unnar Birgisson

_____________

Eygló Harðardóttir er fædd í Reykjavík 1964. Á ferlinum hefur hún haldið fjölda sýninga og hlaut hún Íslensku myndlistarverðlaunin 2019 fyrir einkasýninguna „Annað rými” sem haldin var í Nýlistasafninu 2018. Eygló vinnur gjarnan tví- og þrívíða abstraktskúlptúra, bókverk og verk í almenningsrými. Sköpunarferlið einkennist af rannsóknum og könnun á aðstæðum og efni, þar sem möguleikar og takmarkanir eru kortlagðar og auðkenni þess rannsökuð. Eftir standa verk sem eru afsprengi ferlis þar sem efnið hefur ráðið för. Hún hefur einnig unnið í samstarfi við tónskáld og í ýmsa miðla. Verk hennar eru varðveitt í Listasafni Íslands, Listasafni Reykjavíkur, Nýlistasafninu, Ríkisútvarpinu, WSW NY, Kultuurikauppila í Finnlandi og The Metropolitan Museum NY.

Eygló hélt nýverið stóra einkasýningu í Ásmundasal og var einn tíu listamanna sem sýndi verk á sýningunni Skúlptur/Skúlptúr sem lauk 7. janúar síðastliðið.

Hefð hefur skapast fyrir því að fá listamann til að gera nýtt verk sem varpað er á Kópavogskirkju á Vetrarhátíð. Þóranna Björnsdóttir gerði nýtt verk fyrir kirkjuna árið 2023 og Sirra Sigrún Sigurðardóttir árið 2022.

Lista – og menningarráð Kópavogsbæjar styrkir Vetrarhátíð í Kópavogi.

Dagsetningar

02.feb

18:30 ~ 00:00

03.feb

18:30 ~ 00:00

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

30
apr
Bókasafn Kópavogs
30
apr
02
maí
Menning í Kópavogi
01
maí
Bókasafn Kópavogs
02
maí
Bókasafn Kópavogs
04
maí
Bókasafn Kópavogs
04
maí
Salurinn
04
maí
Menning í Kópavogi
06
maí
11
maí
Bókasafn Kópavogs
07
maí
Bókasafn Kópavogs
03
jún
08
jún
Bókasafn Kópavogs
01
júl
06
júl
Bókasafn Kópavogs
12
ágú
17
ágú
Bókasafn Kópavogs

Sjá meira

Menning í Kópavogi

30
apr
02
maí
Menning í Kópavogi
04
maí
Menning í Kópavogi
08
maí
Menning í Kópavogi

Sjá meira