13.jan 15:00 - 17:00

Sýningaropnun | Venjulegir staðir

Gerðarsafn

Gerðarsafn

Verið velkomin á opnun sýningarinnar Venjulegir staðir í Gerðarsafni laugardaginn 13. janúar kl. 15:00.

Ljósmyndin er magnað fyrirbæri. Svo ótrúlega flöt, bara doppur á blaði eða skjá. Föst í annarri víddinni, þar sem bæði töfra hennar og takmarkanir er að finna. Samt vekur hún upp tilfinningu fyrir rými og efni. Við skynjum myndina, trúum á hana. Þó er enginn sannleikur í myndinni nema sá sem verður til í hugskoti áhorfandans. 
 
Upphafið að sýningunni liggur í ljósmyndinni sem er könnuð í gegnum verk í öðrum miðlum. Líkt og ljósmyndin hafi teygt sig of langt upp úr flatneskjunni og umbreyst í eitthvað annað.  
 
Hér eru ljósmyndir Ívars Brynjólfssonar í samtali við verk Emmu Heiðarsdóttur, Haraldar Jónssonar, Joe Keys og Tine Bek; myndlist sem sprettur úr skynjun mannverunnar á umhverfi sínu. Listamennirnir eiga það sameiginlegt að veita hversdeginum ýtrustu athygli og beygja venjuleikann, oft með því einu að benda á hann. Verkin bera vitni um hversdaginn sem listamaðurinn hefur hoggið lítil brot úr og fyllt vasa sína til að geta sýnt okkur gersemarnar.

Seinni fasi sýningarinnar, Venjulegar myndir, verður opnaður 10. febrúar þar sem sýnd verða verk eftir Ívar Brynjólfsson, Kristínu Sigurðardóttur, Lukas Kindermann, Ragnheiði Gestsdóttur og Tine Bek. 

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

03
maí
08
jún
Salurinn
13
maí
Bókasafn Kópavogs
14
maí
Bókasafn Kópavogs
14
maí
Salurinn
14
maí
Gerðarsafn
15
maí
Gerðarsafn
16
maí
Bókasafn Kópavogs
11:00

Get together

18
maí
Salurinn
18
maí
Salurinn
13:30

Vistarverur

18
maí
Salurinn
24
maí
Salurinn
28
maí
04
jún
Bókasafn Kópavogs

Sjá meira

Gerðarsafn

14
maí
Gerðarsafn
15
maí
Gerðarsafn
24
maí
Gerðarsafn
15
jún
Gerðarsafn
21
jún
Gerðarsafn

Sjá meira