Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir leiðir teiknismiðju inni í sýningarsölum Gerðarsafns þar sem nú stendur yfir sýningin Útlína. Lóa er reynslumikill teiknari og kennir ýmsar teikniæfingar ásamt því að fara í gegnum æfingar sem eru hluti af sýningunni.
Á sýningunni Útlína má sjá ýmsar útgáfur af teikningum, skissum og jafnvel kroti eftir marga af fremstu listamönnum Íslands. Gestir fá æfingu í því hvernig skoða megi útlínur í umhverfinu sem og í listaverkum.
Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir útskrifaðist með BA-gráðu í myndlist frá LHÍ og hefur lokið myndskreytingarnámi í Parsons New School of Design, NY. Lóa Hlín starfar sem teiknari og tónlistarmaður og er að ljúka meistaranámi í ritlist í Háskóla Íslands. Hún hefur gefið út myndasögubækur og birt myndasögur í ýmsum ritum.
Myndverk Lóu má skoða hér.
Fjölskyldustundir á laugardögum eru í boði Menningarhúsanna í Kópavogi sem eru Bókasafn Kópavogs, Gerðarsafn, Náttúrufræðistofa, Salurinn og Héraðsskjalasafn.
Smiðjan er opin öllum og er þátttaka gestum að kostnaðarlausu.