28.feb 2026 13:00 - 15:00

ÞYKJÓ | Undir og yfir, undir og yfir, undir og yfir…

Gerðarsafn

Gerðarsafn

Verið velkomin á fjölskyldustund með Þykjó laugardaginn 28. febrúar í Gerðarsafni. Smiðjan hentar þátttakendum frá 4 ára aldri…til allavegana 104 ára!

Við dáleiðumst inn í ferðalag ullarþráðarins sem hlykkjast upp og niður í vefnaði. Efniviðurinn er litríkur og áferðir textílsins fjölbreyttar. Smám saman myndast leikandi mynstur og hrynjandi.

Viðburðurinn er í tengslum við sýninguna Hörður sem er tilvalið að heimsækja og fá innblástur.

Hönnunarteymið ÞYKJÓ leiðir smiðjuna, en þau hafa vakið athygli hér heima og erlendis fyrir metnaðarfull hönnunarverkefni fyrir börn. Um Þykjó:
ÞYKJÓ er þverfagleg hönnunarstofa sem vinnur fyrir og með börnum og fjölskyldum þeirra. Verkefnin eru fjölbreytt á sviði vöruhönnunar, upplifunarhönnunar, innsetninga og þátttökuverkefna. Hönnunarstarfið miðar að því að örva ímyndunarafl og sköpunarkraft barna í frjálsum leik, en á meðal verkefna hópsins má nefna Hljóðhimna í Hörpu, húsgagnalínuna Kyrrðarrými og Tulipopland leikvöllinn á Keflavíkurflugvelli. ÞYKJÓ hefur hlotið fjölda verðlauna og viðurkenninga fyrir störf sín, en þeirra á meðal eru Hönnunarverðlaun Íslands árið 2024, SVEF verðlaunin 2021 og YAM Awards 2023.

Deildu þessum viðburði

31
okt
Salurinn
07
nóv
Náttúrusafn Kópavogs
14
nóv
Salurinn
21
nóv
Bókasafn Kópavogs
05
des
Náttúrusafn Kópavogs
12
des
Bókasafn Kópavogs
13:00

Luktasmiðja

30
jan
Náttúrusafn Kópavogs

Sjá meira

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

19
okt
Bókasafn Kópavogs
20
okt
Bókasafn Kópavogs
21
okt
Bókasafn Kópavogs
21
okt
Bókasafn Kópavogs
21
okt
Gerðarsafn
22
okt
23
okt
Bókasafn Kópavogs
11:00

Krakkabíó

22
okt
Bókasafn Kópavogs
22
okt
Gerðarsafn
22
okt
23
okt
Bókasafn Kópavogs
22
okt
23
okt
Bókasafn Kópavogs

Sjá meira

Gerðarsafn

21
okt
Gerðarsafn
22
okt
Gerðarsafn
23
okt
Gerðarsafn
11
nóv
Gerðarsafn

Sjá meira